Klæðaburður eiginkonu Kanye lögreglumál á Ítalíu

Kanye West | 23. ágúst 2023

Klæðaburður eiginkonu Kanye lögreglumál á Ítalíu

Eiginkona tónlistarmannsins Kanye West, Bianca Censori, hefur verið að gera allt vitlaust á Ítalíu að undanförnu með djörfum og ögrandi klæðaburði. Óskað hefur verið eftir því að ítalska lögreglan grípi inn í, en Censori er þekkt fyrir að klæðast efnislitlum gegnsæjum fatnaði sem hylur lítið.

Klæðaburður eiginkonu Kanye lögreglumál á Ítalíu

Kanye West | 23. ágúst 2023

Kanye West ásamt eiginkonu sinni, Biöncu Censori.
Kanye West ásamt eiginkonu sinni, Biöncu Censori. Skjáskot/Instagram

Eig­in­kona tón­list­ar­manns­ins Kanye West, Bianca Censori, hef­ur verið að gera allt vit­laust á Ítal­íu að und­an­förnu með djörf­um og ögr­andi klæðaburði. Óskað hef­ur verið eft­ir því að ít­alska lög­regl­an grípi inn í, en Censori er þekkt fyr­ir að klæðast efn­is­litl­um gegn­sæj­um fatnaði sem hyl­ur lítið.

Fram kem­ur á vef Daily Mail að lög í land­inu kveði á um að hver sá sem ber­ar sig á stað eða ná­lægt stað það sem ólögráða börn eru geti fengið sekt á bil­inu 5 þúsund til 10 þúsund evr­ur, eða verið dæmd­ir í fjög­urra mánaða til fjög­urra ára fang­elsis­vist. 

„Óviðeig­andi“ og „móðgandi“

Nú hef­ur ít­alska lög­regl­an verið hvött til að sker­ast inn í. Mynd­ir af par­inu á Ítal­íu sem birt­ust í vik­unni hafa vakið mikla at­hygli og reiði, en mörg­um þykir klæðnaður Censori „óviðeig­andi“ og „móðgandi“ fyr­ir heima­menn.

 „Það kem­ur á óvart að hún hafi ekki verið hand­tek­in. Ítal­ía er mun íhalds­sam­ari, í þessu til­felli með réttu!“ skrifaði einn not­andi á Daily Mail Austr­alia á meðan ann­ar sagði: „Ég vona að Ítalí­ir reki þau bæði úr land­inu. Landið þarf ekki á þessu pari að halda.“

mbl.is