Biðst afsökunar á ummælum sínum um Kanye

Kanye West | 22. september 2023

Biðst afsökunar á ummælum sínum um Kanye

Forstjóri íþróttavöruframleiðandans Adidas hefur beðist afsökunar fyrir að segja að rapparinn Kanye West „meinti ekki það sem hann sagði“ þegar hann lét ummæli falla, sem bundu enda á áralangt samstarf hans með vörumerkinu.

Biðst afsökunar á ummælum sínum um Kanye

Kanye West | 22. september 2023

Kanye West hefur tapað milljörðum eftir að Adidas rauf samning …
Kanye West hefur tapað milljörðum eftir að Adidas rauf samning hans við vörumerkið. AFP

For­stjóri íþrótta­vöru­fram­leiðand­ans Adi­das hef­ur beðist af­sök­un­ar fyr­ir að segja að rapp­ar­inn Kanye West „meinti ekki það sem hann sagði“ þegar hann lét um­mæli falla, sem bundu enda á ára­langt sam­starf hans með vörumerk­inu.

Bjørn Guld­en, sem tók við sem for­stjóri Adi­das í byrj­un árs, lét orðin falla í hlaðvarp­inu „In Good Comp­any“ í síðustu viku, þar sem hann var gest­ur.

Mjög óheppi­legt

Hann sagði í hlaðvarp­inu að West, sem geng­ur nú und­ir nafn­inu Ye, hafi farið með „nokkr­ar full­yrðing­ar sem voru ekki góðar“.

„[Þetta er] mjög óheppi­legt, því ég held að hann hafi ekki meint það sem hann sagði og ég tel hann alls ekki vera slæma mann­eskju – það bara virt­ist þannig,“ sagði Guld­en.

Nú hef­ur Guld­en beðist af­sök­un­ar á um­mæl­un­um, eft­ir að hafa sætt mikla gagn­rýni í kjöl­far þeirra. Auk þess hef­ur fyr­ir­tækið gefið út yf­ir­lýs­ingu í tengsl­um við at­vikið.

„Okk­ar ákvörðun um að slíta sam­starfi með Ye vegna óviðun­andi um­mæla hans var al­gjör­lega rétt. Okk­ar viðhorf hef­ur ekki breyst,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Adi­das.

mbl.is