Ekki enn ljóst hvað veldur breytingum í Öskju

Askja | 3. október 2023

Ekki enn ljóst hvað veldur breytingum í Öskju

Hægt hefur á landrisinu í Öskju frá því í byrjun ágúst. Þetta segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Ekki enn ljóst hvað veldur breytingum í Öskju

Askja | 3. október 2023

Öskjuvatn í vetrarríki hálendisins. Myndin er tekin í febrúar síðastliðnum.
Öskjuvatn í vetrarríki hálendisins. Myndin er tekin í febrúar síðastliðnum. mbl.is/Árni Sæberg

Hægt hef­ur á landris­inu í Öskju frá því í byrj­un ág­úst. Þetta seg­ir í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni.

Hægt hef­ur á landris­inu í Öskju frá því í byrj­un ág­úst. Þetta seg­ir í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni.

Rúm vika er síðan Morg­un­blaðið greindi frá því að dregið hefði úr landris­inu. 

„Það hef­ur ró­lega dregið úr ris­inu á þess­um tveim­ur stöðvum. Þær eru komn­ar nokkuð ná­lægt því að nema staðar, en ekki samt al­veg – þær eru enn á upp­leið,“ sagði Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, sér­fræðing­ur Veður­stof­unn­ar í jarðskorpu­hreyf­ing­um, þá í sam­tali við blaðið.

„En svo er önn­ur stöð, sem er í miðjunni á þessu öllu sam­an – við Ólafs­gíga, og hún sýn­ir ekki neina breyt­ingu. Sömu­leiðis sést eng­in skýr breyt­ing á stöðinni í Jóns­skarði, sem er líka inni í öskj­unni. Að minnsta kosti ekki enn,“ sagði Bene­dikt.

Rætt á fundi

Í til­kynn­ingu Veður­stof­unn­ar nú síðdeg­is seg­ir að þessi breyt­ing á landris­inu hafi verið á meðal umræðuefna á stöðufundi sér­fræðinga stofn­un­ar­inn­ar, Há­skóla Íslands og al­manna­varna. Ekki kem­ur fram hvenær fund­ur­inn var hald­inn.

Tekið er fram að á nokkr­um GPS-mæl­um við Öskju hafi ekk­ert landris mælst frá því í lok ág­úst.

Á sama tíma­bili séu eng­ar vís­bend­ing­ar um aukna jarðskjálfta­virkni eða óeðli­leg­ar breyt­ing­ar á jarðhita­virkni í Öskju.

„Á þess­ari stundu er ekki ljóst hvað veld­ur þess­ari breyt­ingu á þensl­unni, en mögu­lega hef­ur inn­flæði kviku stöðvast eða að kvik­an hef­ur fundið ann­an far­veg sem dreg­ur úr kvikuþrýst­ingi und­ir eld­stöðinni,“ seg­ir í til­kynn­ingu Veður­stof­unn­ar.

Vinna úr gögn­un­um

Bent er á að reglu­leg­ar mæl­ing­ar við Öskju hafi áður sýnt tíma­bil sem ein­kenn­ast af land­sigi og eitt tíma­bil sem ein­kennd­ist af landrisi án þess að til eld­goss hafi komið.

Á þessu stigi sé ekk­ert hægt að full­yrða um hvernig mál­um muni fram vinda. Unnið verði frek­ar úr þeim gögn­um sem liggja fyr­ir til þess að reyna að út­skýra hvað veld­ur breyt­ing­un­um.

Loks seg­ir að nýrri skjálfta­stöð hafi verið bætt við í síðustu viku, vest­an við Öskju, til að bæta ákvörðun staðsetn­ing­ar og dýpt­ar jarðskjálfta.

Bene­dikt sagði í síðustu viku að erfitt væri að túlka þess­ar mæl­ing­ar svo vel væri. Skrýtið væri að svo ná­læg­ar stöðvar sýndu jafn ólík merki.

„Við klór­um okk­ur aðeins í hausn­um yfir þessu. Af hverju breyt­ing­in sést bara á tveim­ur stöðvum en ekki öll­um. Það mun taka svo­lít­inn tíma að sjá hvað þetta þýðir og hvað það er í raun sem á sér stað þarna.“

mbl.is