Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, stal senunni þegar nýjjr þættir um strákahljómsveitina IceGuys voru frumsýndir á dögunum. Binni var klæddur eins og alvöru poppstjarna enda ekki annað við hæfi miðað við tilefnið.

Binni var í gallaklæðnaði frá toppi til táar í kvikmyndahúsinu. Ekki nóg með að Binni klæddist aðeins gallaefni eða það sem kallast erlendis „denim on denim“ þá voru fötin líka úr mismunandi gerð af gallaefni. Minnti íslenski áhrifavaldurinn helst á poppstjörnurnar Britney Spears og Justin Timberlake þegar þau voru upp á sitt besta í kringum síðustu aldamót.
Fyrrverandi stjörnuparið Spears og Timberlake mætti í gallaklæðnaði í stíl á tónlistarverðlaunahátíð árið 2001 en á þessum tíma var Timberlake einmitt í heitustu strákahljómsveit heims.
Á hátíðinni var Timberlake í gallajakka, gallabuxum og með gallahatt. Poppprinsessan Spears var hins vegar í gallakjól úr mismunandi gallaefni, rétt eins og föt Binna voru. Oft er talað um þessi föt þeirra Spears og Timberlake sem föt sem ekki er hægt að gleyma – hvort sem það er jákvætt eða neikvætt!
Það er ekki bara Binni Glee sem hefur klæðst gallafatnaði með góðum árangri. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er þekktur fyrir að klæðast gallajakka og gallaskyrtu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, klæddist kjól fyrir nokkrum árum sem mætti líkja við kjól Birtney Spears, þó kjóll Lilju hafi vissulega verið aðeins settlegri.