5 bestu jólamarkaðirnir í Evrópu

Eistland | 17. nóvember 2023

5 bestu jólamarkaðirnir í Evrópu

Á hverju ári fyllast hinar ýmsu borgir í Evrópu af töfrandi jólamörkuðum sem ættu að geta komið öllum í alvöru jólaskap. Margir þeirra bjóða upp á fallegt handverk til sölu, titrandi jólaljós, tónleika og nóg af hátíðlegum mat og drykk. 

5 bestu jólamarkaðirnir í Evrópu

Eistland | 17. nóvember 2023

Það verður nóg um töfrandi jólamarkaði í Evrópu í ár.
Það verður nóg um töfrandi jólamarkaði í Evrópu í ár. Samsett mynd

Á hverju ári fyll­ast hinar ýmsu borg­ir í Evr­ópu af töfr­andi jóla­mörkuðum sem ættu að geta komið öll­um í al­vöru jóla­skap. Marg­ir þeirra bjóða upp á fal­legt hand­verk til sölu, titrandi jóla­ljós, tón­leika og nóg af hátíðleg­um mat og drykk. 

Á hverju ári fyll­ast hinar ýmsu borg­ir í Evr­ópu af töfr­andi jóla­mörkuðum sem ættu að geta komið öll­um í al­vöru jóla­skap. Marg­ir þeirra bjóða upp á fal­legt hand­verk til sölu, titrandi jóla­ljós, tón­leika og nóg af hátíðleg­um mat og drykk. 

Ný­verið tók ferðavef­ur Condé Nast Tra­vell­er sam­an bestu jóla­markaðina í Evr­ópu í ár.

Köln, Þýskalandi

Á markaðinum finn­ur þú allt sem boðið er upp á á klass­ísk­um þýsk­um jóla­mörkuðum – nóg af jólag­löggi, fal­legu hand­verki og titrandi jóla­ljós­um. Það eru hins veg­ar sýn­ing­arn­ar og skemmt­un­in sem boðið er upp á á þess­um markaði sem læt­ur hann standa upp úr, allt frá jóla­tón­leik­um og leik­rit­um yfir í sýn­ing­ar fyr­ir börn­in. 

Ljós­mynd/​Unsplash/​Car­mela

Kaup­manna­höfn, Dan­mörku

Tív­olíg­arður­inn í Kaup­manna­höfn er skreytt­ur með meira en 500 þúsund æv­in­týra­leg­um jóla­ljós­um fyr­ir hátíðirn­ar sem ættu að geta komið hverj­um sem er í sann­kallað jóla­skap. Í tív­olí­inu er hægt að skella sér í tæki, horfa á sýn­ing­ar í Glass Hall-leik­hús­inu, skella sér á tón­leika og gæða sér á jóla­legu góðgæti að hætti Dan­ans.

Ljós­mynd/​Unsplash/​Kat­arzyna Dut­kowska

Tall­in, Eistlandi

Yfir hátíðirn­ar breyt­ist ráðhús­torgið í Tall­in í æv­in­týra­legt jólaþorp með litl­um sölu­bás­um, jóla­ljós­um og jóla­svein­um. Hápunkt­ur­inn er þó án efa glæsi­legt jóla­tré sem hef­ur verið sett upp fyr­ir fram­an ráðhúsið frá ár­inu 1441.

Ljós­mynd/​Unsplash/​Hert Niks

Berlín, Þýskalandi

Berlín fyll­ist af sjarmer­andi jóla­mörkuðum yfir hátíðirn­ar og því úr mörgu að velja. Hins veg­ar hef­ur lít­ill markaður með skandi­nav­ísku yf­ir­bragði vakið sér­staka at­hygli, en hann er staðsett­ur í göml­um brugg­húsag­arði í Prenz­lau­er Berg. Þar er meira að segja boðið upp á ís­lenskt jólag­lögg!

Ljós­mynd/​Unsplash/​Max­im­al­focus

Búdapest í Ung­verjalandi

Ár hvert er glæsi­leg­ur jóla­markaður sett­ur upp á Szent Ist­ván-torgi í Búdapest með 160 sölu­bás­um, skauta­svelli og al­vöru jóla­stemn­ingu. Markaður­inn var ný­verið val­inn sá besti í Evr­ópu á Europe­an Best Dest­inati­ons

Ljós­mynd/​Unsplash/​Andre Morales Kalam­ar
mbl.is