Er hægt að saga rjúpurnar hans Guðmundar frá Miðdal í sundur?

Marta María | 19. nóvember 2023

Er hægt að saga rjúpurnar hans Guðmundar frá Miðdal í sundur?

Virtur lögmaður á höfuðborgarsvæðinu lét hafa það eftir sér að fólk kynntist ekki fyrir alvöru fyrr en það erfði peninga (og þyrfti að skipta arfinum með öðru fólki). Það að skipta bróðurlega á milli sín og annarra væri ekki á færi allra og líklegra væri að allt færi fjandans til. Hvernig eiga systkini, sem hafa aldrei þolað hvort annað, að geta skyndilega hagað sér vel og farið eftir boðorðunum 10?

Er hægt að saga rjúpurnar hans Guðmundar frá Miðdal í sundur?

Marta María | 19. nóvember 2023

Rjúpurnar frá Guðmundi frá Miðdal njóta vinsælda. Það er hinsvegar …
Rjúpurnar frá Guðmundi frá Miðdal njóta vinsælda. Það er hinsvegar erfitt að aðskilja þær. Samsett mynd

Virt­ur lögmaður á höfuðborg­ar­svæðinu lét hafa það eft­ir sér að fólk kynnt­ist ekki fyr­ir al­vöru fyrr en það erfði pen­inga (og þyrfti að skipta arf­in­um með öðru fólki). Það að skipta bróður­lega á milli sín og annarra væri ekki á færi allra og lík­legra væri að allt færi fjand­ans til. Hvernig eiga systkini, sem hafa aldrei þolað hvort annað, að geta skyndi­lega hagað sér vel og farið eft­ir boðorðunum 10?

Virt­ur lögmaður á höfuðborg­ar­svæðinu lét hafa það eft­ir sér að fólk kynnt­ist ekki fyr­ir al­vöru fyrr en það erfði pen­inga (og þyrfti að skipta arf­in­um með öðru fólki). Það að skipta bróður­lega á milli sín og annarra væri ekki á færi allra og lík­legra væri að allt færi fjand­ans til. Hvernig eiga systkini, sem hafa aldrei þolað hvort annað, að geta skyndi­lega hagað sér vel og farið eft­ir boðorðunum 10?

Án þess að nefna nein nöfn sagði lögmaður­inn frá því hvernig dag­far­sprúðir bonus pater famili­as gætu um­turn­ast í gráðug nýrík skrímsli við það eitt að áskotn­ast pen­ing­ar sem annað fólk hefði stritað fyr­ir. Hann nefndi að fólk væri stund­um til í að gera eig­in­lega hvað sem er til þess að eign­ast loks­ins risa­stór­an Toyotu-jeppa, geta inn­réttað bar heima hjá sér með pool-borði og pílu­spjaldi og bjórkr­ana, farið til Mald­ví­veyja í frí og borðað á veit­inga­stöðum á venju­leg­um mánu­dög­um í stað þess að sjóða sér katta­mat og drekka vatn með.

Það er ein­mitt vegna þess­ara orða lög­manns­ins sem það er mik­il­vægt að minna fólk á, sem er á besta aldri, að eyða bara arfi barn­anna. Það er að segja ef fólk á pen­inga sem gætu valdið deil­um.

Er ekki til­gangs­laust að hafa verið allt sitt líf í þrem­ur vinn­um, vaknað upp í öll­um veðrum og sparað hverja ein­ustu krónu, til þess eins að af­kom­end­ur geti hnakkrif­ist yfir pen­ing­un­um þínum þegar búið er að hola þér niður? Það hlýt­ur að vera dap­ur­legt að horfa á fjöl­skyldu­veldi sitt springa í loft upp því þú átt­ir svo mikið og börn­in þín geta ekki komið sér sam­an um hver á að fá rjúp­urn­ar hans Guðmund­ar frá Miðdal eða Kjar­val­inn? Það er ekki hægt að saga mál­verkið í tvennt og rjúp­urn­ar brotna bara ef ein­hver reyn­ir að aðskilja þær. Þú sem ætlaðir loks­ins að slaka á þarna í himna­ríki og hafa það náðugt neyðist þess í stað til að horfa niður á öll þessi ósköp. Eina sem þú get­ur gert er að fá dauðans sam­visku­bit yfir því að hafa ekki frek­ar reynt að ala börn­in upp í stað þess að vera alltaf í vinn­unni. Ef þú hefðir átt minna væru þau ekki að kasta krist­alsvös­um, sem þú keypt­ir þegar þú fórst í reisu með veiðiklúbbn­um til Prag, hvert í annað heima hjá þér og skemma par­ketið í leiðinni. Meiri ótukt­irn­ar.

Hvers vegna ætli það sé jafn­ríkt í fólki og það er að skilja nógu mikið eft­ir fyr­ir börn­in þegar þú ert horf­in/​n á braut? Land­læg meðvirkni hjá hon­um meðal-Jóni ætti ekki að vilja hleypa öllu í bál og brand eft­ir hans dag. Það er ekki auðvelt að greina hvers vegna þessi hugs­un­ar­hátt­ur er ríkj­andi.

Kannski erum við sem þjóð bara svo ung og óreynd í erfðamál­um að við höld­um að þetta eigi að vera svona. Við sem yngri erum þurf­um að hvetja leiðtog­ana í lífi okk­ar til þess að njóta eig­in erfiðis og eyða pen­ing­un­um sín­um án þess að detta í full­komið stjórn­leysi.

Flökkukind­ur eiga að ferðast um heim­inn á meðan þær eru á fæti og ekki orðnar slæm­ar í hnján­um og komn­ar með gláku. Fag­ur­ker­ar ættu líka að kaupa sér eitt­hvað fal­legt. Kannski nýj­an stól í stof­una? Ein­hvern fag­urrauðan eft­ir Arne Jac­ob­sen? Fólk sem finn­ur fyr­ir von­um og vænt­ing­um býr yfir and­legu ríki­dæmi sem hef­ur þó ekk­ert með pen­inga að gera. Það að langa í eitt­hvað og hafa krafta til að búa til æv­in­týri er eft­ir­sókn­ar­vert.

Svo má ekki gleyma því að von­ir og vænt­ing­ar og kannski smá fiðring­ur yfir ein­hverju fal­legu sem gleður skyn­fær­in örv­ar hag­kerfi heims­ins.

Það að langa í eitt­hvað er merki um að fólk sé enn með renn­andi blóð í æðum og hjarta sem slær. Er hægt að fá eitt­hvað mikið meira út úr líf­inu en það?

mbl.is