Skutu eldflaugum að bandarísku skipi

Ísrael/Palestína | 27. nóvember 2023

Skutu eldflaugum að bandarísku skipi

Hútar í Jemen skutu fyrr í kvöld tveimur eldflaugum í átt að bandaríska tundurspillinum USS Mason, sem nú er staddur í Aden-flóa.

Skutu eldflaugum að bandarísku skipi

Ísrael/Palestína | 27. nóvember 2023

USS Mason er tundurspillir af Arleigh Burke-gerð.
USS Mason er tundurspillir af Arleigh Burke-gerð. Ljósmynd/Bandaríski sjóherinn

Hút­ar í Jemen skutu fyrr í kvöld tveim­ur eld­flaug­um í átt að banda­ríska tund­ur­spill­in­um USS Ma­son, sem nú er stadd­ur í Aden-flóa.

Hút­ar í Jemen skutu fyrr í kvöld tveim­ur eld­flaug­um í átt að banda­ríska tund­ur­spill­in­um USS Ma­son, sem nú er stadd­ur í Aden-flóa.

Tund­ur­spill­ir­inn hafði fyrr um kvöldið tekið þátt í aðgerðum til að bjarga olíu­flutn­inga­skip­inu MV Central Park, en fimm byssu­menn reyndu að ræna skip­inu og neyða það til hafn­ar í Jemen, þar sem Hút­ar fara nú með völd en þeir njóta stuðnings klerka­stjórn­ar­inn­ar í Íran.

Kom banda­ríski tund­ur­spill­ir­inn í veg fyr­ir að sjóránið heppnaðist og hand­tók sjó­ræn­ingj­ana fimm.

Að sögn Jenni­fer Griff­in, varn­ar­mála­blaðamanni Fox News, fylgd­ist tund­ur­spill­ir­inn með eld­flaug­un­um, en þær misstu fljót­lega flugið og féllu í Aden-flóa. Sagði Griff­in að litið væri á þetta sem um­tals­verða stig­mögn­un hót­ana Húta í garð banda­rískra her­skipa, sem hafa m.a. tekið þátt í að skjóta niður eld­flaug­ar sem Hút­ar hafa reynt að skjóta á Ísra­el.

Dan Lamot­he, varn­ar­mála­blaðamaður Washingt­on Post, staðfesti síðan frá­sögn Griff­in eft­ir eig­in leiðum og bætti við að Hút­ar hefðu gert aðra til­raun til þess að ræna olíu­flutn­inga­skip­inu sem USS Ma­son bjargaði.

Ýmsir sér­fræðing­ar í varn­ar­mál­um hafa einnig tjáð sig á Twitter/​X og velt þar upp þeim mögu­leika að um skot­flaug­ar af ír­anskri gerð, sem eiga að vera sér­hannaðar til þess að hitta skip, hafi verið að ræða, en það væri þá í fyrsta sinn í sög­unni sem slík­um flaug­um er beitt í hernaði.

mbl.is