„Okkur gengur illa að semja við SFS“

Kjaramál sjómanna | 1. desember 2023

„Okkur gengur illa að semja við SFS“

„Okkur hjá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna (VM) gengur illa að semja við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Það eitt að hækka tímakaup vélstjóra í takti við tímakaup fyrir önnur sambærileg störf fær engan hljómgrunn við samningaborðið,“ skrifar Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, í pistli á vef stéttarfélagsins.

„Okkur gengur illa að semja við SFS“

Kjaramál sjómanna | 1. desember 2023

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir SFS ekki til í …
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir SFS ekki til í að hækka tímakaup vélstjóra í samræmi við það sem gerst hefur hjá öðrum stéttum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Okk­ur hjá Fé­lagi vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) geng­ur illa að semja við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Það eitt að hækka tíma­kaup vél­stjóra í takti við tíma­kaup fyr­ir önn­ur sam­bæri­leg störf fær eng­an hljóm­grunn við samn­inga­borðið,“ skrif­ar Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM, í pistli á vef stétt­ar­fé­lags­ins.

„Okk­ur hjá Fé­lagi vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) geng­ur illa að semja við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Það eitt að hækka tíma­kaup vél­stjóra í takti við tíma­kaup fyr­ir önn­ur sam­bæri­leg störf fær eng­an hljóm­grunn við samn­inga­borðið,“ skrif­ar Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM, í pistli á vef stétt­ar­fé­lags­ins.

Bend­ir hann á að tíma­kaup vél­stjóra hafi ekki hækkað frá ár­inu 2019 en á sama tíma­bili hafa laun al­mennt hækkað um 43,4%. „Kröfu vél­stjóra fyr­ir leiðréttu tíma­kaupi er varla hægt að tala um sem brauðmola þegar brauðhleif­ur út­gerðar­inn­ar er ann­ars veg­ar. Þetta er mylsna.“

Fé­lags­menn VM felldu í mars því sem kallað var „tíma­móta­samn­ingi“ við SFS með 59,72% at­kvæða gegn 38,16%. Fé­lags­menn Sjó­manna­sam­bands Íslands felldu einnig samn­ing­inn með 67,43% gegn 31,52%. Skiptjórn­ar­menn samþykktu samn­ing­inn með 55,39% at­kvæða gegn 42,57%.

Guðmund­ur Helgi seg­ir stöðuna ein­kenni­lega og vís­ar til af­komu út­gerðarfyr­ir­tækj­anna. „Hagnaðar Síld­ar­vinnsl­unn­ar á fyrstu níu mánuðum þessa árs var rúm­lega 8.600 millj­ón­ir ís­lenskra króna. Það er tæp­lega millj­arður – þúsund millj­ón­ir – á mánuði. Brim hagnaðist á þriðja árs­fjórðungi um 3.800 millj­ón­ir króna, svo annað nær­tækt dæmi sé tekið. Fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Fram ehf., sem Guðbjörg Matth­ías­dótt­ir á með fjór­um son­um sín­um, sem aft­ur átti ÍV fjár­fest­inga­fé­lag sem átti 58% hlut í Ísfé­lag­inu, lækkaði ný­verið hluta­fé fé­lags­ins með 2.750 millj­óna króna út­greiðslu til hlut­hafa. Það er nóg til.“

Hvert fiski­skip er fjár­fest­ing upp á millj­arða króna og ráða út­gerðir vél­stjóra til að hugsa um fjár­fest­ing­una, seg­ir formaður­inn. „Þegar skip­in koma í land, að veiðiferð lok­inni, fara all­ir heim til sín nema vél­stjór­arn­ir. Þeir þurfa að sjá um og stýra því viðhaldi sem þarf að inna af hendi, enda eru mikl­ir fjár­hags­leg­ir hags­mun­ir í húfi. Á meðan stóru út­gerðarfyr­ir­tæk­in hagn­ast sum hver um millj­arð á mánuði velja þau að greiða þeim sem sjá til þess að skip­in séu í lagi tíma­kaup sem er lítið hærra en nem­a­kaup í smiðju – og mun lægra kaup en vél­virkj­ar fá greitt.“

Nýr samningur milli sjómanna og útgerðar náðist í febrúar en …
Nýr samn­ing­ur milli sjó­manna og út­gerðar náðist í fe­brú­ar en VM og Sjó­manna­sam­bandið felldi samn­ing­inn í at­kvæðagreiðslu. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Verk að vinna

Bend­ir Guðmund­ur Helgi á niður­stöðu skoðana­könn­un­ar Fé­lags­vís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands sem unn­in var fyr­ir mat­vælaráðuneytið sem gaf til kynna að meiri­hluti lands­manna telja sjáv­ar­út­veg­inn spillat­an og að hann skapi verðæti fyr­ir fáa.

„Útgerðinni – og reynd­ar sjáv­ar­út­vegs­ráðherra – er tíðrætt um mik­il­vægi þess að ná fram sátt­um í sjáv­ar­út­vegi. Það er al­veg ljóst að út­gerðin legg­ur ekki mikið á sig til að starfa í sátt við starfs­fólkið sitt; hvorki samn­ings­lausa sjó­menn né vél­stjóra sem þiggja skíta­laun við bryggju fyr­ir mik­il­væga vinnu. Útgerðin hef­ur þarna verk að vinna.“

mbl.is