Það sem Jón Pétur segir þurfa að gera

Íslenska | 7. desember 2023

Það sem Jón Pétur segir þurfa að gera

„Ef við ætlum ekki að verða tungumálalaus þjóð þá verðum við að hætta að upphefja allar þessar tungumálaslettur og æfa okkur í að tala góða íslensku inni á heimilum.“

Það sem Jón Pétur segir þurfa að gera

Íslenska | 7. desember 2023

Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla.
Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. mbl.is/Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

„Ef við ætl­um ekki að verða tungu­mála­laus þjóð þá verðum við að hætta að upp­hefja all­ar þess­ar tungu­málas­lett­ur og æfa okk­ur í að tala góða ís­lensku inni á heim­il­um.“

„Ef við ætl­um ekki að verða tungu­mála­laus þjóð þá verðum við að hætta að upp­hefja all­ar þess­ar tungu­málas­lett­ur og æfa okk­ur í að tala góða ís­lensku inni á heim­il­um.“

Þetta er meðal ann­ars það sem Jón Pét­ur Zimsen, aðstoðarskóla­stjóri Rétt­ar­holts­skóla, seg­ir við mbl.is, spurður að því hvernig hann myndi móta alls­herj­ar­átak til þess að snúa þeirri þróun við sem sjá má í niður­stöðum PISA 2022.

Niður­stöðurn­ar sýna að 40% fimmtán ára nem­enda á Íslandi búa ekki yfir grunn­hæfni í lesskiln­ingi.

Ann­ar hver dreng­ur á þeim aldri get­ur ekki lesið sér til gagns, þó að ára­löng skóla­ganga sé þá þegar að baki.

Aðeins ís­lenska verði töluð á leik­skól­um

„Það þyrfti hug­ar­fars­breyt­ingu varðandi orðaforða og hug­taka­skiln­ing. Það ætti að auka lest­ur inn­an skól­anna mjög mikið og fá ís­lensku­kenn­ara í alla leik­skóla. Öll börn sem fara á leik­skóla þyrftu að vera í ís­lensku um­hverfi og þá sér­stak­lega er­lendu börn­in,“ seg­ir Jón Pét­ur.

Hann bæt­ir við að aðeins ís­lenska ætti að vera töluð á leik­skól­um lands­ins og að ekki ætti að sýna börn­um þar mynd­bönd á ensku.

„Það ætti að leggja þess­um spjald­tölv­um og það þyrfti að vera mikið sam­tal inni í skóla­stof­unni, allt á ís­lensku og kenn­ar­arn­ir að hafa gott vald á ís­lenskri tungu.“

Jón Pétur segir að fyrirmyndir barna þurfi að vekja áhuga …
Jón Pét­ur seg­ir að fyr­ir­mynd­ir barna þurfi að vekja áhuga þeirra á lestri. mbl.is/​Hari

Okkar fremsta íþrótta­fólk þarf að hamra á mik­il­vægi máls­ins

Jón seg­ir það þurfa að fylgja börn­um vel eft­ir í lestr­ar­nám­inu.

Í sex ára bekk yrðu all­ir svo gott sem læs­ir og að mælt yrði jafnt og þétt hvar hver væri stadd­ur þannig að all­ir sem gætu verið læs­ir eft­ir sex ára bekk séu orðnir læs­ir þá.

En svo seg­ir hann að það þurfi að vekja áhuga barn­anna á lestri:

„Svo þyrfti mark­visst að láta þá lesa skemmti­leg­ar bæk­ur, vekja áhuga þeirra á bók­um og fá fólk sem er litið upp til, eins og okk­ar fremsta íþrótta­fólk, til að hamra stans­laust á því að ís­lensk­an skipt­ir máli. Ef við ætl­um ekki að verða tungu­mála­laus þjóð þá verðum við að hætta að upp­hefja all­ar þess­ar tungu­málas­lett­ur og æfa okk­ur í að tala góða ís­lensku inni á heim­il­um.“

Börn­in æfi sig í rit­un

„Það þarf að láta krakk­ana æfa sig í rit­un, skrifa um ein­hver ákveðin efni og þvinga þá til að skrifa um eitt­hvað þar sem þeir þurfa að nota ákveðinn orðaforða, leita að orðum og búa til litla stutta texta,“ seg­ir Jón Pét­ur.

„Með þessu mynd­um við geta leikið okk­ur að því að hækka þess­ar töl­ur svo að krakk­arn­ir geti lesið sér til gagns.“

Hann seg­ir að skól­inn þyrfti að leggja áherslu á að börn­in séu læs og við þyrft­um að mæla það jafnt og þétt hjá hverju barni fyr­ir sig, þannig að það verði eng­inn útund­an.

„Það þarf enda­lausa þjálf­un til að geta sett orð í alls kon­ar sam­hengi. Við vilj­um ekki að krakk­arn­ir séu enda­laust að gúgla. Það er tál­sýn að þú get­ir gúglað alla hluti,“ seg­ir Jón Pét­ur.

mbl.is