Flutti með dóttur sína, tvo ketti og fimm ferðatöskur

Danmörk | 10. desember 2023

Flutti með dóttur sína, tvo ketti og fimm ferðatöskur

Það var alltaf draumur hjá Anitu Lind Björnsdóttur að flytja erlendis. Í fyrra kýldi hún á það og flutti með dóttur sinni til Kolding í Danmörku. Hún kann vel við lífið á Jótlandi þar sem vel er hugsað um fjölskyldur og matarkarfan er töluvert ódýrari en á Íslandi.

Flutti með dóttur sína, tvo ketti og fimm ferðatöskur

Danmörk | 10. desember 2023

Anita Lind Björnsdóttir segir lífið ljúft í Danmörku.
Anita Lind Björnsdóttir segir lífið ljúft í Danmörku.

Það var alltaf draum­ur hjá Anitu Lind Björns­dótt­ur að flytja er­lend­is. Í fyrra kýldi hún á það og flutti með dótt­ur sinni til Kol­d­ing í Dan­mörku. Hún kann vel við lífið á Jótlandi þar sem vel er hugsað um fjöl­skyld­ur og mat­arkarf­an er tölu­vert ódýr­ari en á Íslandi.

Það var alltaf draum­ur hjá Anitu Lind Björns­dótt­ur að flytja er­lend­is. Í fyrra kýldi hún á það og flutti með dótt­ur sinni til Kol­d­ing í Dan­mörku. Hún kann vel við lífið á Jótlandi þar sem vel er hugsað um fjöl­skyld­ur og mat­arkarf­an er tölu­vert ódýr­ari en á Íslandi.

„Það hef­ur alltaf togað í mig að flytja. Mig langaði að breyta til. Ég var ekki nógu ánægð með mína stöðu og gerði eitt­hvað í því. Ég skellti mér bara með dótt­ur mína, tvo ketti og fimm ferðatösk­ur. Ég hafði ekki einu sinni komið til Kol­d­ing áður,“ seg­ir Anita. 

Fékk drauma­vinnu

„Ég er að vinna núna og er í tungu­mála­skóla að læra dönsku. Ég var nátt­úru­lega sof­andi í dönsku í skóla en ég finn að ég með for­skot þegar kem­ur að því að lesa dönsk­una en maður hafði kannski átt að fylgj­ast bet­ur með þegar maður var yngri,” seg­ir Anita. Hún er ánægð með tungu­mála­skól­ann en þar lær­ir hún líka um danska menn­ingu og gildi, meðal ann­ars þau sem snúa að því að sýna hóg­værð.

Anita seg­ir mik­il­vægt að geta talað dönsku á vinnu­markaði á Jótlandi. „Ég er að vinna á hunda­hót­eli sem er æðis­legt. Fyr­ir mörg­um árum ætlaði ég að opna hunda­hót­el. Mér finnst geggjað að vinna með dýr­um. Ég upp­lifi mikla ham­ingju þegar ég er að vinna með hund­um.“

Anita Lind flutti ásamt dóttur sinni og köttunum.
Anita Lind flutti ásamt dótt­ur sinni og kött­un­um.

Mat­ur­inn er tölu­vert ódýr­ari

Anita finn­ur fyr­ir því að það er margt ódýr­ara í Dan­mörku, en leig­an er til dæm­is ódýr­ari og það er mat­arkarf­an einnig. „Fyrst keypti ég inn í vit­laus­um búðum, í dýr­ari búðunum, en ég fattaði það ekki af því mér fannst allt svo ódýrt. Svo fór ég að setja mig bet­ur inn í þetta. Svo eru reglu­leg til­boð á mat hér sem maður get­ur fylgst með í gegn­um öpp,” seg­ir Anita.

Á dög­un­um vakti Anita at­hygli á hvað mat­arkarf­an henn­ar kostaði lítið. Meðal þess sem Anita keypti var kjúk­ling­ur, ost­ar, saf­ar, bjórkippa, brauð og fleira. Karf­an kostaði ekki nema 300 krón­ur dansk­ar eða um sex þúsund ís­lensk­ar krón­ur. Anita seg­ir að ef hún myndi bara kaupa það allra nauðsyn­leg­asta kæm­ist hún upp með að versla fyr­ir 1.500 krón­ur dansk­ar á mánuði.

Sæl­gæti og gos er dýrt í Dan­mörku en hún seg­ir ástæðuna vera syk­ur­skatt­inn. „Þá fer maður í Þýska­lands­ferð. Það tek­ur bara klukku­tíma. Það er fyndið að geta bara skroppið til næsta lands og keypt eitt­hvað ódýr­ara og farið aft­ur heim.”

Þessi matarkarfa kostaði um sex þúsund krónur.
Þessi mat­arkarfa kostaði um sex þúsund krón­ur.

Huggu­leg­heit í Dan­mörku

Dan­ir eru þekkt­ir fyr­ir að hjóla allt sem þeir fara. „Ég hjóla sex kíló­metra í vinn­una og svo sex heim,“ seg­ir Anita sem var hætt að nota bíl á Íslandi en hún bjó á Ak­ur­eyri. Í stað þess gekk hún, hjólaði eða tók strætó. 

Anita er ánægð með lífs­gæðin í Dan­mörku. Lækn­isþjón­ust­an er ókeyp­is og skól­inn hef­ur komið vel til móts við dótt­ur henn­ar. Sveit­ar­fé­lagið kom líka vel til móts við hana þegar hún var ný­flutt og at­vinnu­laus.

Það er þó ekki síst hin hvers­dags­legu lífs­gæði sem hún er ánægð með. „Dan­ir elska að hafa það huggu­legt,“ seg­ir hún og nefn­ir að vel sé hugsað um fjöl­skyldu og gælu­dýr. Það er hægt að sækja afþrey­ingu og menn­ingu frítt. „Það er líka ótrú­lega gam­an að geta hjólað á strönd­ina eða taka lest til annarra bæja eða jafn­vel til Kaup­manna­hafn­ar,“ seg­ir Anita. 

Ætlar þú að flytja aft­ur til Íslands?

„Ég hugsa að ég flytji ekki aft­ur til Íslands.“

Anita fer allt á hjólinu sem hún segir dásamlegt.
Anita fer allt á hjól­inu sem hún seg­ir dá­sam­legt. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is