Ekki útséð um að deilan leysist án átaka

Kjaramál sjómanna | 14. desember 2023

Ekki útséð um að deilan leysist án átaka

Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) mun ekki taka ákvörðun um mögulegar vinnustöðvanir í tengslum við kjaraviðræður við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fyrr en eftir áramót, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Ekki útséð um að deilan leysist án átaka

Kjaramál sjómanna | 14. desember 2023

Kjaravirðæðum VM við SFS hefur verið slitið og munu vélstjórar …
Kjaravirðæðum VM við SFS hefur verið slitið og munu vélstjórar nýta hátíðirnar til að skipuleggja næstu skref, verkfall er ekki útilokað. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) mun ekki taka ákvörðun um mögu­leg­ar vinnu­stöðvan­ir í tengsl­um við kjaraviðræður við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fyrr en eft­ir ára­mót, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

„Ég yrði ekki hissa ef menn vildu – komi ekki fram veru­lega breytt til­boð – grípa til verk­falla á nýju ári,“ seg­ir Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son formaður VM. „Við erum ekki búin að taka ákvörðun um fram­haldið. Við höf­um sýnt mjög mikið lang­lund­ar­geð.“

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM.
Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

VM til­kynnti 6. des­em­ber að ákveðið hefði verið að slíta viðræðum við SFS og full­yrt var að viðræðurn­ar hefðu reynst ár­ang­urs­laus­ar. Samn­inga­nefnd VM hygðist nú ráðfæra sig við fé­lags­menn um næstu skref.

Guðmund­ur Helgi tel­ur vanda­mál að for­stjór­ar fé­laga taki þátt í viðræðunum sjálf­um. „Ef þeir vildu semja fljótt og vel myndu þeir ekki hleypa for­stjór­un­um að, þeir eru van­ir að stjórna öll­um. […] Þetta er að verða erfiðara en póli­tík­in. Það þykir mér leitt.“

Nán­ar má lesa um kjara­deil­una í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is