Má bjóða þér að kyssa kút?

Marta María | 2. janúar 2024

Má bjóða þér að kyssa kút?

Stuttu eftir að Barbieland var frumsýnd ákvað Pamela Anderson, ein mesta skvísa allra tíma, að leggja snyrtidótið sitt á hilluna. Eftir áralanga þrautagöngu í átt að fullkomnun komst Anderson að því að ófullkomleikinn væri kannski bara bestur. Á sama tíma létu íslenskar konur stækka varirnar hjá lýtalæknum og í skúmaskotum úthverfanna.

Má bjóða þér að kyssa kút?

Marta María | 2. janúar 2024

Barbieland var frumsýnd á árinu en stuttu síðar ákvað mesta …
Barbieland var frumsýnd á árinu en stuttu síðar ákvað mesta gella allra tíma, Pamela Anderson, að hætta að mála sig. Samsett mynd

Stuttu eft­ir að Barbie­land var frum­sýnd ákvað Pamela And­er­son, ein mesta skvísa allra tíma, að leggja snyrtidótið sitt á hill­una. Eft­ir ára­langa þrauta­göngu í átt að full­komn­un komst And­er­son að því að ófull­kom­leik­inn væri kannski bara best­ur. Á sama tíma létu ís­lensk­ar kon­ur stækka var­irn­ar hjá lýta­lækn­um og í skúma­skot­um út­hverf­anna.

Stuttu eft­ir að Barbie­land var frum­sýnd ákvað Pamela And­er­son, ein mesta skvísa allra tíma, að leggja snyrtidótið sitt á hill­una. Eft­ir ára­langa þrauta­göngu í átt að full­komn­un komst And­er­son að því að ófull­kom­leik­inn væri kannski bara best­ur. Á sama tíma létu ís­lensk­ar kon­ur stækka var­irn­ar hjá lýta­lækn­um og í skúma­skot­um út­hverf­anna.

Öfgar ein­kenndu árið í glans­heim­in­um sem er full­ur af þver­sögn­um – líkt og sam­fé­lög heims­ins. Fólk lagði mikið á sig til þess að fá hina full­komnu ásjónu í feg­urðarstaðli sem er ættaður frá Barbi­efram­leiðand­an­um Mattel. Útlits­dýrk­un­in er at­vinnu­skap­andi fyr­ir lýta­lækna en hef­ur líka leitt af sér nýtt af­brigði af und­ir­heima­at­vinnu­starf­semi þar sem ómenntað fólk spraut­ar fylli­efn­um í and­lit fólks sem er oft og tíðum ekki komið með full­mótaðan fram­heila. Ekki er um ein­angrað til­felli að ræða held­ur fjöl­mörg. Á ár­inu kom stúlka nokk­ur heim eft­ir erfiðan skóla­dag. Hún var öll fjólu­blá fyr­ir ofan efri vör­ina og þegar móðir henn­ar spurði hvað hefði komið fyr­ir svaraði stúlk­an á inn­sog­inu: „Ekk­ert.“

Auðvitað kom „ekk­ert“ fyr­ir þannig séð. Marið jafnaði sig og var­irn­ar urðu eins og á flest­um ung­um kon­um í dag. Svo­lítið kyssi­leg­ar og vísuðu upp með létt­um anda­svip. Var­ir með fyll­ing­ar­efn­um eru lif­andi dæmi um tísku­straum sem ein­kenndi árið í ár ásamt þykk­um og mynd­ar­leg­um auga­brún­um, síðu, flaks­andi og liðuðu hári og löng­um gelnögl­um (helst með munstri). Fólk sem fékk sér ekki í var­irn­ar á ár­inu var svo­lítið eins og fólkið sem keypti sér ekki flat­skjá fyr­ir hrun. Al­veg úti á túni.

Maður nokk­ur um fimm­tugt lýsti vara­fyll­ing­um eig­in­konu sinn­ar með töfr­andi hætti þegar hann sagði að upp­lif­un­in væri svo­lítið eins og að kyssa kút. Kút­ur er blás­inn upp með lofti á meðan var­ir eru blásn­ar upp með fyll­ing­ar­efni. Hon­um fannst upp­lif­un­in óspenn­andi og gat ekki beðið eft­ir því að þessi hryll­ing­ur myndi renna úr vör­un­um næstu sex mánuði eða svo. Eig­in­kon­an benti mann­in­um á að hún myndi aldrei þora aft­ur því sárs­auk­inn, sem fylgdi spraut­un fyll­ing­ar­efna í einn viðkvæm­asta lík­ams­part­inn, væri um það bil verri en að fæða 16 marka krakka án deyf­ing­ar.

Auðvitað er freist­andi að verða eins og Kenner-syst­urn­ar í fram­an án þess að þurfa að nota TikT­ok-bjú­tíf­ilter­inn sem gerði allt vit­laust á ár­inu. TikT­ok blés út á ár­inu og fólk virt­ist ekki vera með renn­andi blóð í æðum nema vera með slík­an reikn­ing. Það var held­ur ekki lif­andi nema það væri búið að taka upp dans­mynd­band og líkja eft­ir Beckham-hjón­un­um þar sem þau nudduðu sér upp við hvort annað und­ir róm­an­tísk­asta lagi allra tíma, Is­lands in the Stream. Á meðan við búum til gumsu­leg dans­mynd­bönd í skít­uga eld­hús­inu okk­ar skelli­hlæja Kín­verj­ar sem bjuggu TikT­ok til. Kín­verj­ar vilja yf­ir­taka heim­inn og þar sem stríð eru svo „last sea­son“ ákváðu þeir að búa til for­rit sem eyðilegg­ur heil­ann í fólki og það fer að haga sér eins og það sé í lífs­lokameðferð.

Pamela Anderson mætti óförðuð á tískuvikuna í París á dögunum. …
Pamela And­er­son mætti óförðuð á tísku­vik­una í Par­ís á dög­un­um. Mynd­in hægra meg­in var tek­in 2005. Sam­sett mynd

Upp­færð út­gáfa af Pamelu And­er­son

Á sama tíma og fólk fór í bíl­skúr í út­hverfi til að láta hugs­an­leg man­sals­fórn­ar­lömb sprauta fyll­ing­ar­efn­um í varn­irn­ar á sér ákvað Pamela And­er­son, stjarn­an úr Strand­vörðum, að leggja snyrtidót sitt (og hugs­an­lega fylli­efni og bótox) á hill­una. Hún komst í frétt­ir á ár­inu þegar hún mætti óförðuð á tísku­sýn­ingu síðasta haust. Þessi gamla Strand­varðastjarna kastaði inn hand­klæðinu eft­ir að förðun­ar­meist­ari henn­ar lést.

Förðun­ar­meist­ar­inn hafði unnið gott ævi­starf þegar hann pródúseraði út­lit And­er­son sem varð svo eft­ir­sókn­ar­vert að til varð al­heims­hreyf­ing sem vildi líta út eins og lif­andi Barbie-dúkka. Þessi al­heims­hreyf­ing lærði að setja í sig svo­kallaðan „druslu­snúð“ sem var hár­greiðsla sem naut vin­sælda og plokkaði vand­lega á sér auga­brún­irn­ar þannig að eft­ir stóð þunn rönd. Ekki er vitað hvort förðun­ar­leysi And­er­son hef­ur eitt­hvað með kvik­mynd­ina Barbie­land að gera en það er ískyggi­lega grun­sam­legt að hún hafi kastað inn hand­klæðinu stuttu eft­ir að mynd­in var frum­sýnd.

Leikkonan Margot Robbie fer með hlutverk Barbie í kvikmyndinni.
Leik­kon­an Margot Robbie fer með hlut­verk Barbie í kvik­mynd­inni. AFP/​Just­in Tall­is

Í kvik­mynd­inni lif­ir Barbie í sín­um full­komna heimi þar sem fjör og feg­urð ráða för. Barbie klæðir sig í fal­leg föt og djamm­ar með vin­kon­um sín­um. Þær eru svo upp­tekn­ar hver af ann­arri að Ken greyið, kærast­inn henn­ar Barbie, er hálf­tengsl­araskaður vegna áhuga­leys­is kær­ust­unn­ar. Fólk sem hef­ur tekið ást­fóstri við Barbie og henn­ar ver­öld á ein­hverj­um tíma­punkti í lífi sínu veit að elsku tengsl­araskaði Ken var eig­in­lega alltaf óþarf­ur og hef­ur ekk­ert með Barbie­land að gera. Það var í raun ekk­ert sem hann gat gert eða sagt sem breytti leikn­um. Ef það mun­ar ekki um þig – þá mun­ar ekki um þig. Þannig að Ken var bara úti í horni nema eitt­hvert yngra systkini þyrfti endi­lega að fá vera með í leikn­um – þá mátti það leika Ken en bara í kort­er.

Stjórn­end­ur Mattel ákváðu að fara í gerð Barbie­land til þess að reyna að markaðssetja Barbie á nýj­an leik og höfða til yngri neyt­enda. Barbie var hætt að vera stór­veldið sem hún var. Sem er kannski ekki skrýtið því ung­menni eru nán­ast hætt að leika sér. Börn læra það sem fyr­ir þeim er haft. Þar sem for­eldr­ar þeirra eru annaðhvort í veik­inda­leyfi vegna kuln­un­ar eða láta eins og þau séu á jóga ni­dra-nám­skeiði, í hjóna­rúm­inu, þar sem sím­ar eru leyfðir, dett­ur þeim alls ekki í hug að fara inn í stofu og breyta Ea­mes-stóln­um í risa Barbie-tjald sem snýst.

Á ár­inu komst það í frétt­ir að 11 ára stelp­ur væru komn­ar með flókn­ari húðrútínu en Jenner-syst­urn­ar. Vitn­eskja hinna 11 ára kom beint af TikT­ok sem er greini­lega ekki bara að reyna að eyðileggja heil­ann í Vest­ur­landa­bú­um held­ur líka húðina á þeim. Það gæti verið ennþá meira áhyggju­efni en fólk ger­ir sér grein fyr­ir.

Margot Robbie og Ryan Gosling fara með hlutverk Barbie og …
Margot Robbie og Ryan Gosl­ing fara með hlut­verk Barbie og Ken í kvik­mynd­inni Barbie. Sam­sett mynd
mbl.is