Kenna Bandaríkjunum og Ísrael um sprengingarnar

Ísrael/Palestína | 3. janúar 2024

Kenna Bandaríkjunum og Ísrael um sprengingarnar

Ráðgjafi forseta Írans kennir Ísraelum og Bandaríkjamönnum um sprengingarnar tvær sem urðu 103 að bana í dag, skammt frá graf­hýsi Qa­sem So­leimani, æðsta her­for­ingja Írans. Bandaríkin segja sprengingarnar líkjast hryðjuverkaárásum ISIS.

Kenna Bandaríkjunum og Ísrael um sprengingarnar

Ísrael/Palestína | 3. janúar 2024

Að minnsta kosti 103 hafa látið lífið vegna sprenginganna.
Að minnsta kosti 103 hafa látið lífið vegna sprenginganna. AFP

Ráðgjafi for­seta Írans kenn­ir Ísra­el­um og Banda­ríkja­mönn­um um spreng­ing­arn­ar tvær sem urðu 103 að bana í dag, skammt frá graf­hýsi Qa­sem So­leimani, æðsta her­for­ingja Írans. Banda­rík­in segja spreng­ing­arn­ar líkj­ast hryðju­verka­árás­um ISIS.

Ráðgjafi Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta sagði við blaðamenn fyrr í dag að spreng­ing­arn­ar litu út fyr­ir að vera „hryðju­verka­árás, eins og ISIS hef­ur gert í gegn­um tíðina“.

Írönsk stjórn­völd halda þó öðru fram. Mohammad Jams­hidi, ráðgjafi for­seta Írans skrifaði á X, áður Twitter: „Washingt­on seg­ir að Banda­rík­in og Ísra­el hafi ekki átt þátt í hryðju­verka­árás­inni í Kerm­an í Íran. Í al­vöru?“ 

„Mis­skiljið ekki. Ábyrgðin á þess­um glæp ligg­ur hjá Banda­ríkja­stjórn og síon­ista­stjórn­um og hryðju­verk eru bara tæki,“ bætti Jams­hidi við.

Af­leiðing­ar mik­ill­ar spennu

Rahm­an Jalali, vara­héraðsstjóri Kerm­an-héraðs, seg­ir at­b­urðinn vera hryðju­verk. AFP frétta­veit­an grein­ir hins veg­ar frá því að spreng­ing­arn­ar tvær, sem fjallað er um sem „hryðju­verka­árás­ir“, séu í raun af­leiðing­ mik­ill­ar spennu í Miðaust­ur­lönd­um vegna átaka Ísra­els og Ham­as á Gasa.

Jafn­framt seg­ir á að sprengju­árás­irn­ar séu tengd­ar dróna­árás Ísra­els í Beirút, höfuðborg Líb­anons, sem fram­in var í gær. Sa­leh al-Ar­uri, næ­stráðandi Ham­as-hryðju­verka­sam­tak­anna, var meðal þeirra sex sem féllu í árás­inni. 

mbl.is