Minnst 53 látnir í sprengingum í Íran

Íran | 3. janúar 2024

Minnst 53 látnir í sprengingum í Íran

Að minnsta kosti 53 eru látnir og 71 særður í tveimur sprengingum sem urðu skammt frá grafhýsi Qasem Soleimani, æðsta herforingja Írans, en í dag eru fjögur ár liðin frá því að hann var ráðinn af dögum í loftárás Bandaríkjahers.

Minnst 53 látnir í sprengingum í Íran

Íran | 3. janúar 2024

Íranir minnast So­leimani 7. janúar árið 2020, fjórum dögum eftir …
Íranir minnast So­leimani 7. janúar árið 2020, fjórum dögum eftir að honum var ráðinn bani. Í dag létust 20 í sprengingu skammt frá grafhýsi hans. AFP/Atta Kenare

Að minnsta kosti 53 eru látn­ir og 71 særður í tveim­ur spreng­ing­um sem urðu skammt frá graf­hýsi Qa­sem So­leimani, æðsta her­for­ingja Írans, en í dag eru fjög­ur ár liðin frá því að hann var ráðinn af dög­um í loft­árás Banda­ríkja­hers.

Íransk­ir miðlar hafa greint frá því að 60 hafi særst í spreng­ing­un­um í at­höfn skammt frá Sa­heb al-Zam­an mosk­unni í borg­inni Kerm­an í Íran.

Rahm­an Jalali, vara­héraðsstjóri Kerm­an-héraðs, seg­ir at­b­urðinn vera hryðju­verk.

Upp­fært klukk­an 13.12:

Í fyrstu út­gáfu frétt­ar­inn­ar kom fram að minnst 20 hefðu látið lífið í spreng­ing­un­um. Er­lend­ir miðlar greina nú frá því að staðfest dauðsföll séu 53.

mbl.is