Sigla suðurleiðina um Afríku til að forðast Húta

Jemen | 3. janúar 2024

Sigla suðurleiðina um Afríku til að forðast Húta

Átján skipafyrirtæki hafa fyrirskipað flutningaskipum sínum að sigla suður í kringum Afríku til þess að forðast Rauðahaf, þar sem fjöldi flutningaskipa hefur orðið fyrir árásum að undanförnu. Vestræn ríki hafa kennt uppreisnarmönnum Húta í Jemen um árásirnar.

Sigla suðurleiðina um Afríku til að forðast Húta

Jemen | 3. janúar 2024

CMA CGM Palais Royal, stærsta gámaflutningaskip heims, er eitt þeirra …
CMA CGM Palais Royal, stærsta gámaflutningaskip heims, er eitt þeirra skipa sem siglt hefur um suðurhluta Rauðahafs og Hútar hafa ógnað með aðgerðum sínum. AFP

Átján skipa­fyr­ir­tæki hafa fyr­ir­skipað flutn­inga­skip­um sín­um að sigla suður í kring­um Afr­íku til þess að forðast Rauðahaf, þar sem fjöldi flutn­inga­skipa hef­ur orðið fyr­ir árás­um að und­an­förnu. Vest­ræn ríki hafa kennt upp­reisn­ar­mönn­um Húta í Jemen um árás­irn­ar.

Þetta seg­ir Arsenio Dom­ingu­ez, for­stjóri Alþjóðasigl­inga­mála­stofn­un­ar­inn­ar, sem heyr­ir und­ir Sam­einuðu þjóðirn­ar.

„Tals­verður fjöldi fyr­ir­tækja, um það bil átján, hef­ur þegar ákveðið að beina skip­um sína í kring­um Suður-Afr­íku til þess að fækka árás­um á skip­in sín,“ hef­ur AFP-frétta­veit­an eft­ir Dom­ingu­ez. Það þýðir að all­ar ferðir verði tíu dög­um lengri en ella, sem muni hafa slæm áhrif á viðskipt­in og auka flutn­ings­kostnað.

Hút­ar skutu tveim­ur flug­skeyt­um í suður­hluta Rauðahafs frá Jemen í gær­kvöldi, að sögn banda­rískra stjórn­valda. Þeir eru tald­ir hafa gert árás­irn­ar til stuðnings hryðju­verka­sam­tök­un­um Ham­as og eru þeir studd­ir af klerka­stjórn­inni í Íran. Það var 24. árás­in sem beint var gegn kaup­skip­um á suður­hluta Rauðahafs síðan 19. nóv­em­ber, að sögn banda­rískra stjórn­valda.

mbl.is