Hæpið að þyngjast um 10 kíló um jólin

Inga næringarþerapisti | 5. janúar 2024

Hæpið að þyngjast um 10 kíló um jólin

Inga Kristjáns­dótt­ir nær­ingaþerap­isti skrifar um hvernig er að fara aftur af stað eftir jólin. Margir hugsa hvort þeir hafa ekki klúðrað öllu um jólin en Inga segir alls ekki svo vera.

Hæpið að þyngjast um 10 kíló um jólin

Inga næringarþerapisti | 5. janúar 2024

Inga Kristjánsdóttir.
Inga Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Inga Kristjáns­dótt­ir nær­ingaþerap­isti skrif­ar um hvernig er að fara aft­ur af stað eft­ir jól­in. Marg­ir hugsa hvort þeir hafa ekki klúðrað öllu um jól­in en Inga seg­ir alls ekki svo vera.

Inga Kristjáns­dótt­ir nær­ingaþerap­isti skrif­ar um hvernig er að fara aft­ur af stað eft­ir jól­in. Marg­ir hugsa hvort þeir hafa ekki klúðrað öllu um jól­in en Inga seg­ir alls ekki svo vera.

„Við þekkj­um það ör­ugg­lega flest að finn­ast við hafa klúðrað lífs­stíln­um yfir jól­in. Al­veg sama þó að við höf­um veitt viðspyrnu og viðnám, reynt að forðast það sem við vit­um fer hræðilega í okk­ur, og gert okk­ar besta.

Við erum öll bara svo skemmti­lega mann­leg. Ég segi fyr­ir mig, að það er al­veg sama hve mikið ég reyni að vanda mig, ég finn alltaf fyr­ir smá blús svona í upp­hafi árs. Pínu druslu­leg eitt­hvað, aðeins með bjúg og svo­lítið á böm­mer.

Ókei skítt með það, ég veit líka að ég er snögg að ná mér á strik aft­ur, bæði hvað varðar mataræði og hreyf­ingu. Farið ótal sinn­um í gegn­um þetta ástand og trúi og treysti því að ég komi mér í fyrri gír.

Ertu að hugsa þetta?

Það mik­il­væg­asta er að fest­ast ekki í ein­hverri hugs­ana­villu sem gæti litið svona út:

„Ég er búin að eyðileggja allt sem ég var búin að ná fram fyr­ir jól.“ – Nei, nei haltu bara áfram þar sem frá var horfið, þú ert alls ekki á byrj­un­ar­reit.

„Ég er pottþétt búin að fitna um 10 kíló.“ – Mjög hæpið og mest af ein­hverri auka jólaþyngd er bara vatns­söfn­un og bjúg­ur.

„Vá hvað ég er búin að rústa öllu og glæt­an ég nái að rétta mig við á næst­unni.“ – Þú veist bet­ur, þú hef­ur gert þetta áður.

„Ég ætla bara að halda áfram að borða syk­ur og rugl, hvort sem er búin að klúðra þessu.“ – Nei alls ekki og gleymdu þessu niðurrifi.

„Ég er aga­laus aum­ingi, hef enga sjálfs­stjórn.“ – Bull, þú þarft bara að koma lík­am­an­um í fyrra jafn­vægi og þá nærðu stjórn.

Jóla­hátíðin er stutt

Málið er að jóla­hátíðin ótrú­lega stutt tíma­bil af heilu ári og engu hef­ur verið rústað í stóra sam­heng­inu. Þó, þér finn­ist það kannski.

Mundu, það skipt­ir engu máli hvað þú borðaðir á milli jóla og ný­árs, en öllu máli hvað þú borðar á milli ný­árs og jóla.

Kannski þarftu að lesa þetta tvisvar.

Gleðilegt ár og þú ert al­veg með þetta. Ekki falla í gildru eig­in bulls.“

mbl.is