Myndir af eiginkonunni vekja óhug

Kanye West | 5. janúar 2024

Myndir af eiginkonunni vekja óhug

Kanye West hefur strengt óvenjulegt áramótaheit þetta árið sem snýr að eiginkonu hans Biöncu Censori. Hann segir að hún muni klæðast enn færri fötum í ár en fólk eigi almennt að venjast.

Myndir af eiginkonunni vekja óhug

Kanye West | 5. janúar 2024

Kanye West gengur líka undir heitinu Ye.
Kanye West gengur líka undir heitinu Ye. AFP

Kanye West hef­ur strengt óvenju­legt ára­móta­heit þetta árið sem snýr að eig­in­konu hans Biöncu Censori. Hann seg­ir að hún muni klæðast enn færri föt­um í ár en fólk eigi al­mennt að venj­ast.

Kanye West hef­ur strengt óvenju­legt ára­móta­heit þetta árið sem snýr að eig­in­konu hans Biöncu Censori. Hann seg­ir að hún muni klæðast enn færri föt­um í ár en fólk eigi al­mennt að venj­ast.

Eft­ir að West og Censori tóku sam­an þá hef­ur Censori vakið mikla at­hygli fyr­ir djarf­an klæðaburð og jafn­vel kom­ist í kast við lög­in vegna fata­vals.  

„Eng­ar bux­ur þetta árið,“ skrifaði West í færslu á In­sta­gram. Við færsl­una birti hann mynd af Censori fá­klæddri. 

Skipt­ar skoðanir eru meðal aðdá­enda West um sam­band hans við Censori.

„Ertu bú­inn að niður­lægja hana nóg eða hvað?,“ spyr einn við færsl­una.

Sér­fræðing­ar í lík­ams­tján­ingu telja að West sé að sýna vald sitt með því að deila mynd­um af kon­unni sinni á sam­fé­lags­miðlum.

„Þegar West var að leiða konu sína um göt­ur Flórens og hún klædd í húðlituðum, gagn­sæj­um sam­fest­ingi með púða fyr­ir bring­una. Þá vonuðum við að þetta væri ein­hver einka­húm­or á milli pars­ins. En þess­ar nýj­ustu mynd­ir benda til þess að það sem geng­ur á heima fyr­ir sé eitt­hvað enn al­var­legra en það sem við fáum að sjá á götu úti,“ seg­ir Judi James í viðtali við The Mirr­or.

„Hann gæti verið að sýna okk­ur eig­in­kon­una óham­ingju­sama á að líta, íklædd til­vilj­un­ar­kennd­um bönd­um og efn­is­bút­um en það er hans eig­in lík­ams­staða sem skap­ar mestu áhrif­in. Hann kem­ur alltaf fram í „pass­í­vu“ hlut­verki áhorf­and­ans. Hann vom­ir þarna sem ein­hver í dyra­gætt­inni, full­klædd­ur og sýn­ir eng­in svip­brigði, hvorki ástúð né aðdáun,“ seg­ir James.

Myndir West af eiginkonunni vekja óhug.
Mynd­ir West af eig­in­kon­unni vekja óhug. Skjá­skot/​In­sta­gram
View this post on In­sta­gram

A post shared by Ye (@kanyewest)

Parið vakti mikla athygli á Ítalíu í sumar þar sem …
Parið vakti mikla at­hygli á Ítal­íu í sum­ar þar sem Censori var í efn­is­litl­um föt­um.
mbl.is