Grímsvötn færð upp í gulan

Grímsvötn | 11. janúar 2024

Grímsvötn færð upp í gulan

Fluglitakóðinn yfir Grímsvötnum hefur verið færður upp á gulan, þar sem jökulhlaup er hafið.

Grímsvötn færð upp í gulan

Grímsvötn | 11. janúar 2024

Flogið yfir Grímsvötnum.
Flogið yfir Grímsvötnum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Flug­litakóðinn yfir Grím­svötn­um hef­ur verið færður upp á gul­an, þar sem jök­ul­hlaup er hafið.

Flug­litakóðinn yfir Grím­svötn­um hef­ur verið færður upp á gul­an, þar sem jök­ul­hlaup er hafið.

Þetta kem­ur fram á vef Veður­stofu Íslands. Kóðinn var grænn fyrr í dag sem þýddi að eng­ar vís­bend­ing­ar væru um að eld­gos væri vænt­an­legt.

Nú er hann orðinn gul­ur, sem þýðir að eld­stöð sýni merki um virkni um­fram venju­legt ástand. 

Gulur kóði þýðir að eldstöðin sýni merki um virkni, umfram …
Gul­ur kóði þýðir að eld­stöðin sýni merki um virkni, um­fram venju­legt ástand. Kort/​Veður­stofa Íslands

Stærsti skjálfti frá upp­hafi hrinu og jök­ul­hlaup hafið

Jarðskjálft­i reið yfir við Gríms­fjall í morg­un og er sá stærsti við eld­stöðina Grím­svötn frá upp­hafi mæl­inga 1991.

Jök­ul­hlaup er hafið úr Grím­svötn­um og aukn­ar lík­ur eru á gosi í eld­stöðinni, að sögn Magnús­ar Tuma Guðmunds­son­ar, pró­fess­ors í jarðeðlis­fræði við Há­skóla Íslands.

mbl.is