Biden: Bein viðbrögð við árásum Húta í Rauðahafi

Jemen | 12. janúar 2024

Biden: Bein viðbrögð við árásum Húta í Rauðahafi

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist hafa skipað fyrir um árásirnar á Jemen í nótt, sem bein viðbrögð við fordæmalausum árásum á alþjóðlegan skipaflota í Rauðahafi undanfarið.

Biden: Bein viðbrögð við árásum Húta í Rauðahafi

Jemen | 12. janúar 2024

Skjáskot AFP frá útsendingu Al-Masirah sjónvarpsstöðinni í Jemen sýnir eldhaf …
Skjáskot AFP frá útsendingu Al-Masirah sjónvarpsstöðinni í Jemen sýnir eldhaf og reykský eftir loftárásir bandamanna. AFP

Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, seg­ist hafa skipað fyr­ir um árás­irn­ar á Jemen í nótt, sem bein viðbrögð við for­dæma­laus­um árás­um á alþjóðleg­an skipa­flota í Rauðahafi und­an­farið.

Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, seg­ist hafa skipað fyr­ir um árás­irn­ar á Jemen í nótt, sem bein viðbrögð við for­dæma­laus­um árás­um á alþjóðleg­an skipa­flota í Rauðahafi und­an­farið.

CNN grein­ir frá.

„Í dag, sam­kvæmt minni skip­un, hóf Banda­ríkja­her ásamt breska hern­um með stuðningi frá Ástr­al­íu, Barein, Kan­ada og Hollandi, skipu­lagðar loft­árás­ir á fjölda skot­marka í Jemen, sem Hút­ar hafa nýtt til að stofna frelsi til sigl­inga í hættu á einni mik­il­væg­ustu sigl­inga­leið heims,“ er haft eft­ir for­set­an­um í yf­ir­lýs­ingu frá Hvíta hús­inu.

Jafn­fram er haft eft­ir hon­um að hann muni ekki hika við að skipa fyr­ir um frek­ari aðgerðir til að vernda fólk og frítt flæði alþjóðaviðskipta ef nauðsyn krefji.

Haft er eft­ir Alex Grynkewich, hers­höfðingja og yf­ir­manni í banda­ríska flug­hern­um að árás­irn­ar hafi beinst að yfir 60 skot­mörk­um á 16 staðsetn­ing­um sem Hút­ar ráði yfir, þar á meðal stjórn- og eft­ir­lits­stöðvum, skot­vopna­geymsl­um, eld­flauga­kerf­um, fram­leiðslu­stöðum og loft­varnarrat­sjár­kerf­um. Not­ast hafi verið við yfir 100 stýr­i­skot­færi af ýms­um gerðum.

„Við vor­um alls ekki að miða á íbúa­byggð. Við ein­beitt­um okk­ur að mjög sér­stök­um skot­mörk­um á mjög sér­stök­um svæðum með mjög ná­kvæm­um aðferðum,“ er haft eft­ir öðrum yf­ir­manni inn­an banda­ríkja­hers.

mbl.is