Grímsvötn eru komin að þolmörkum, segir Þorvaldur

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Grímsvötn eru komin að þolmörkum, segir Þorvaldur

Eldstöðin í Grímsvötnum er komin að þolmörkum, að mati Þorvalds Þórðarsonar eldfjallafræðings, sem bendir á að stóri skjálftinn sem reið yfir í vikunni gæti hafa myndað farveg fyrir kviku til að leita upp. Fyrirvarinn fyrir gos gæti orðið stuttur en gosið yrði samt lítið.

Grímsvötn eru komin að þolmörkum, segir Þorvaldur

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Þorvaldur segir fyrirvara gossins geta orðið stuttan.
Þorvaldur segir fyrirvara gossins geta orðið stuttan. Samsett mynd

Eld­stöðin í Grím­svötn­um er kom­in að þol­mörk­um, að mati Þor­valds Þórðar­son­ar eld­fjalla­fræðings, sem bend­ir á að stóri skjálft­inn sem reið yfir í vik­unni gæti hafa myndað far­veg fyr­ir kviku til að leita upp. Fyr­ir­var­inn fyr­ir gos gæti orðið stutt­ur en gosið yrði samt lítið.

Eld­stöðin í Grím­svötn­um er kom­in að þol­mörk­um, að mati Þor­valds Þórðar­son­ar eld­fjalla­fræðings, sem bend­ir á að stóri skjálft­inn sem reið yfir í vik­unni gæti hafa myndað far­veg fyr­ir kviku til að leita upp. Fyr­ir­var­inn fyr­ir gos gæti orðið stutt­ur en gosið yrði samt lítið.

Eins og mbl.is hef­ur greint frá er lítið jök­ul­hlaup hafið í Grím­svötn­um og gos talið lík­legt, einkum þegar hlaup­inu lýk­ur en það er talið munu ná há­marki á sunnu­dag. Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur lýst yfir óvissu­stigi al­manna­varna vegna hlaups­ins.

Þor­vald­ur, sem er pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands, seg­ir að það sé erfitt að segja til um hvort gjósi eða ekki.

„Þetta er nátt­úru­lega lítið jök­ul­hlaup og mér finnst ólík­legt að það sé að fara að triggera gosið [þ.e. hleypa því af stað],“ seg­ir hann í sam­tali við mbl.is en bend­ir á að gos sé samt afar lík­legt.

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands.
Þor­vald­ur Þórðar­son, pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands. mbl.is/​Brynj­ólf­ur Löve

Eld­stöðin kom­in á þol­mörk

„Eld­stöðin er kom­in á þol­mörk hvað eld­gos varðar. En það get­ur ann­ars gosið hvenær sem er. Hvort þetta muni hleypa henni af stað er erfitt að segja til um,“ seg­ir pró­fess­or­inn. 

Spurður nán­ar út í hvað hann eigi við um að eld­stöðin sé „kom­in á þol­mörk“ nefn­ir Þor­vald­ur þrjú atriði: Grím­svötn gjósa að meðaltali einu sinni eða tvisvar á hverj­um ára­tug en sein­ast gaus fyr­ir tæp­lega 13 árum, landris er meira en það var að há­marki fyr­ir síðasta gos og skjálfta­virkni hef­ur auk­ist á umliðnum árum.

Gos í Grímsvötnum 2011.
Gos í Grím­svötn­um 2011. LJós­mynd/​Kristján G Kristjáns­son

Gosið yrði lítið

„En ef það verður gos, verður það lík­lega frek­ar lítið gos. Sem stend­ur í kannski þrjá, fóra, fimm daga,“ seg­ir Þor­vald­ur.

„Gjósku­fallið verður meira og minna bara á jök­ul­inn. Þannig áhrif­in á gos­inu verða al­veg í lág­marki,“ bæt­ir hann við. Hátt í 90% gjósk­unn­ar úr síðustu Grím­s­vatnagos­um hafi fallið á Vatna­jök­ul.

Stóri skjálft­inn gæti hafa myndað far­veg fyr­ir kviku 

Á fimmtu­dags­morg­un reið yfir stærsti skjálfti sem mælst hef­ur í Grím­svötn­um frá upp­hafi mæl­inga 1991. Skjálft­inn var um 4,3 að stærð. 

„Það [skjálft­inn stóri] seg­ir okk­ur að það er búið að byggja upp ein­hverja spennu þarna. Þú varst að losa um hana,“ út­skýr­ir eld­fjalla­fræðing­ur­inn.

„Ef þú los­ar um spennu þá get­urðu nátt­úru­lega líka búið til far­veg fyr­ir kviku til að finna sér leið til yf­ir­borðs,“ bæt­ir Þor­vald­ur við.

Fyr­ir­var­inn gæti orðið stutt­ur og gos­mökk­ur­inn hár

Hvernig yrði fyr­ir­var­inn?

„Við mynd­um sjá skjálfta­virkni aukast. Það myndi koma hrina,“ seg­ir hann. „Kannski ekki endi­lega stór­ir skjálft­ar. Þetta yrðu bara tíðir skjálft­ar,“ svar­ar Þor­vald­ur.

„Fyr­ir­var­inn get­ur verið mjög stutt­ur,“ bæt­ir hann við.

Fyr­ir­var­inn í síðasta Grím­s­vatnagosi 2011 var ekki nema um ein klukku­stund. Grím­s­vatnagos myndi þó hafa nán­ast eng­in áhrif í byggð. 

Gos­mökk­ur­inn í byrj­un goss­ins gæti náð 12 kíló­metra hæð og myndi þannig raska flug­um­ferð. Þess vegna hef­ur Veður­stof­an fært flug­litakóðann yfir Grím­svöt­um upp á gul­an. 

mbl.is