Óróinn eykst í Grímsvötnum

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Óróinn eykst í Grímsvötnum

Órói vegna jökulhlaups eykst í Grímsvötnum. Það gerir vatnshæðin í Gígjukvísl einnig. Jökulhlaupið nær sennilega hámarki um helgina en skjálftavirkni er þó lítil.

Óróinn eykst í Grímsvötnum

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Horft yfir Grímsvötn.
Horft yfir Grímsvötn. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Órói vegna jök­ul­hlaups eykst í Grím­svötn­um. Það ger­ir vatns­hæðin í Gígju­kvísl einnig. Jök­ul­hlaupið nær senni­lega há­marki um helg­ina en skjálfta­virkni er þó lít­il.

Órói vegna jök­ul­hlaups eykst í Grím­svötn­um. Það ger­ir vatns­hæðin í Gígju­kvísl einnig. Jök­ul­hlaupið nær senni­lega há­marki um helg­ina en skjálfta­virkni er þó lít­il.

Þetta segja nátt­úru­vár­sér­fræðing­ar við mbl.is en eins og greint var frá í gær er lítið jök­ul­hlaup hafið í Grím­svötn­um, virk­ustu eld­stöð Íslands.

„Það [vatns­hæðin] held­ur áfram vaxa við Gígju­kvísl og óró­inn á Grím­s­vatni held­ur áfram vaxa,“ seg­ir Sig­ríður Magnea Óskars­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is.

Jök­ul­hlaupið nái há­marki um helg­ina

„Þannig að það [jök­ul­hlaupið] hef­ur ekki náð há­marki enn þá,“ bæt­ir hún við.

Aðspurð seg­ir hún að bú­ist sé við því að hlaupið nái há­marki um helg­ina. Hún seg­ir að sé lík­leg­ast þegar jök­ul­hlaup er á enda en það er samt „alls ekk­ert víst held­ur“. 

Hún bend­ir þá einnig á að það sé óal­gengt að jök­ul­hlaup hleypi af stað gosi. Það hafi í raun aðeins gerst tvisvar, 1934 og 2004.

„Þegar það nær há­marki er það 1000 rúm­metr­ar á sek­úndu,“ býst Sig­ríður við. 

Vatnshæð hefur aukist um 70 sentimetra.
Vatns­hæð hef­ur auk­ist um 70 senti­metra. Kort/​Veður­stofa Íslands

„Pínu­litl­ir“ skjálft­ar

Sig­ríður Kristjáns­dótt­ir, sem eins og nafni sinn er einnig nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á veður­stof­unni, seg­ir að það hafi verið mjög lít­il skjálfta­virkni á Grím­svötn­um í dag.

„Það eru í raun bara tveir pínu­litl­ir skjálft­ar sem hafa mælst,“ seg­ir hún við mbl.is.

Í gær­morg­unn mæld­ist stærsti skjálfti sem mælst hef­ur í Grím­svötn­um frá upp­hafi mæl­inga 1991. Skjálft­inn var um 4,3 að stærð.

Óvissu­stigi lýst yfir

Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur lýst yfir óvissu­stigi al­manna­varna vegna jök­ul­hlaups í Grím­svötn­um.

Flug­litakóði yfir eld­stöðinni hef­ur verið færður upp á gul­an en talið er að gos í Grím­svötn­um myndi raska flug­um­ferð, þar það yrði sprengigos.

Raf­leiðni í Gígju­kvísl er byrjuð að aukast lít­il­lega og hef­ur vatns­magn í ánni vaxið jafnt og þétt á síðustu tveim­ur sól­ar­hring­um.

mbl.is