Rafleiðni byrjuð að aukast

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Rafleiðni byrjuð að aukast

Rafleiðni í Gígjukvísl er byrjuð að aukast lítillega og hefur vatnsmagn í ánni vaxið jafnt og þétt á síðustu tveimur sólarhringum.

Rafleiðni byrjuð að aukast

Grímsvötn | 12. janúar 2024

Gígjukvísl. Mynd úr safni.
Gígjukvísl. Mynd úr safni. Ljósmynd/Grétar Sigurðsson

Raf­leiðni í Gígju­kvísl er byrjuð að aukast lít­il­lega og hef­ur vatns­magn í ánni vaxið jafnt og þétt á síðustu tveim­ur sól­ar­hring­um.

Raf­leiðni í Gígju­kvísl er byrjuð að aukast lít­il­lega og hef­ur vatns­magn í ánni vaxið jafnt og þétt á síðustu tveim­ur sól­ar­hring­um.

Hef­ur vatns­hæðin risið um rúma 70 senti­metra á þeim tíma sam­kvæmt mæl­um á brúnni við Þjóðveg 1.

Í til­kynn­ingu Veður­stof­unn­ar seg­ir að raf­leiðni í ánni sé merki um aukið magn hlaup­vatns í ánni en leiðni vatns seg­ir til um styrk upp­leystra raf­hlaðinna efna og efna­sam­banda. 

Vatnshæðin hefur risið um 70 sentimetra.
Vatns­hæðin hef­ur risið um 70 senti­metra. Graf/​Veður­stofa Íslands
Rafleiðni hefur aukist lítillega. Hér má sjá breytingu frá 9. …
Raf­leiðni hef­ur auk­ist lít­il­lega. Hér má sjá breyt­ingu frá 9. janú­ar og fram til dags­ins í dag. Graf/​Veður­stofa Íslands

Eng­in skjálfta­virkni frá því í gær

Eng­in skjálfta­virkni hef­ur mælst í Grím­svötn­um eða hlaup­far­veg­in­um und­ir Skeiðár­jökli síðan í gær en hlaupórói vex stöðugt á Gríms­fjalli sem er merki um að rennsli sé enn að aukast úr Vötn­un­um.

Bú­ist er við að jök­ul­hlaupið nái há­marki í Grím­svötn­um um eða eft­ir helg­ina og komi fram í Gígju­kvísl ein­um til tveim­ur sól­ar­hring­um síðar. 

Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, fag­stjóri af­lög­un­ar­mæl­inga á Veður­stofu Íslands, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að mesta þrýst­ings­breyt­ing­in yrði í eld­stöðinni þegar vötn­in væru við það að tæma sig. Væru þá mest­ar lík­ur á eld­gosi. Gæti það gerst á næstu sól­ar­hring­um.

Á grafinu sést glögglega hvernig hlaupórói hefur vaxið síðustu daga.
Á graf­inu sést glögg­lega hvernig hlaupórói hef­ur vaxið síðustu daga. Graf/​Veður­stofa Íslands
mbl.is