Ekki hægt að útiloka eldgos í Grímsvötnum

Grímsvötn | 14. janúar 2024

Ekki hægt að útiloka eldgos í Grímsvötnum

„Það er ekki hægt að útiloka neitt enn þá í rauninni,“ segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, um hvort enn megi búast við eldgosi í Grímsvötnum í kjölfar jökulhlaups þar.

Ekki hægt að útiloka eldgos í Grímsvötnum

Grímsvötn | 14. janúar 2024

Síðast varð eldgos í Grímsvötnum árið 2011, en það var …
Síðast varð eldgos í Grímsvötnum árið 2011, en það var ekki í tengslum við jökulhlaup þaðan. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Það er ekki hægt að úti­loka neitt enn þá í raun­inni,“ seg­ir Böðvar Sveins­son, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, um hvort enn megi bú­ast við eld­gosi í Grím­svötn­um í kjöl­far jök­ul­hlaups þar.

Hlaupórói hef­ur farið dvín­andi frá því að hlaupið náði há­marki seint í gær­kvöldi eða nótt. Eng­in merki eru um eld­gos eins og staðan er nú að sögn Böðvars. 

„Þetta virðist vera í ein­hvers kon­ar rén­un, en það er farið aðeins að lækka þarna suðið í Grím­svötn­um.“

Rennsli og raf­leiðni í Gígju­kvísl held­ur áfram að vaxa en bú­ast má við að hlaupið nái há­marki í ánni um ein­um til tveim­ur sól­ar­hring­um seinna en í Grím­svötn­um.

Skjálft­inn ekki merki um gosóróa

Klukk­an 15.23 mæld­ist jarðskjálfti nærri Bárðarbungu sem var 3,4 að stærð. Spurður hvort það sé merki um gosóróa seg­ir Böðvar svo ekki vera.

„Það ger­ist oft þegar að það er að tæma sig. Þá kem­ur svona smá suð og get­ur komið smá skjálfti,“ seg­ir hann og bæt­ir við að eng­inn gosórói sjá­ist enn.

„Við fylgj­umst bara með hvort að eitt­hvað fleira ger­ist.“

mbl.is