Hútar hæfðu skip á Rauðahafi

Jemen | 15. janúar 2024

Hútar hæfðu skip á Rauðahafi

Vöruflutningaskip í bandarískri eigu, skráð á Marshall-eyjum, varð fyrir flugskeyti á Rauðahafi í dag, úti fyrir strönd Jemens. Frá þessu greinir breska Maritime Trade Operations-stofnunin sem hefur með öryggismál á hafi úti að gera.

Hútar hæfðu skip á Rauðahafi

Jemen | 15. janúar 2024

Grant Shapps, varnarmálaráðherra Bretlands, flutti í dag ræðu í Lancaster-húsinu …
Grant Shapps, varnarmálaráðherra Bretlands, flutti í dag ræðu í Lancaster-húsinu í London og ræddi þar mikilvægi þess að verja breska og bandaríska hagsmuni gegn ítrekuðum árásum Húta á flutninga- og herför á Rauðahafi. AFP/Henry Nicholls

Vöru­flutn­inga­skip í banda­rískri eigu, skráð á Mars­hall-eyj­um, varð fyr­ir flug­skeyti á Rauðahafi í dag, úti fyr­ir strönd Jem­ens. Frá þessu grein­ir breska Ma­ritime Tra­de Operati­ons-stofn­un­in sem hef­ur með ör­ygg­is­mál á hafi úti að gera.

Vöru­flutn­inga­skip í banda­rískri eigu, skráð á Mars­hall-eyj­um, varð fyr­ir flug­skeyti á Rauðahafi í dag, úti fyr­ir strönd Jem­ens. Frá þessu grein­ir breska Ma­ritime Tra­de Operati­ons-stofn­un­in sem hef­ur með ör­ygg­is­mál á hafi úti að gera.

Sagði í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar, sem birt var á vefsíðu henn­ar, að skipið hefði orðið fyr­ir „flug­skeyti að ofan“ án þess að farið væri ger­leg­ar í smá­atriði.

Þá grein­ir breskt fyr­ir­tæki, Ambrey, sem ann­ast áhættu­grein­ingu sjófar­enda, frá því að eld­ur hafi kviknað um borð í flutn­inga­skip­inu í kjöl­far árás­ar­inn­ar en eng­inn í áhöfn­inni hafi beðið lík­ams­tjón af og skipið verið haf­fært þrátt fyr­ir at­lög­una.

Hefnd fyr­ir árás­ir á föstu­dag­inn

Telja tals­menn Ambrey það lík­legt að árás­in, sem upp­reisn­ar­menn Húta stóðu á bak við, hafi verið til hefnda fyr­ir loft­árás­ir Banda­ríkja og Breta á her­stöðvar upp­reisn­ar­mann­anna í Jemen á föstu­dag­inn en ekki tengst vær­ing­um Ísra­les­manna og Ham­as-hryðju­verka­sam­tak­anna á Gasa­svæðinu.

Ól árás­in á föstu­dag á ótta þeirra sem bera kvíðboga fyr­ir því að átök Ísra­els­manna við Ham­as breiði úr sér til annarra svæða heims­ins.

Hafa Hút­ar skotið að nokkr­um flutn­inga­skip­um á Rauðahafi síðustu mánuði og látið í veðri vaka að öll skip, óháð þjóðerni, séu skot­mörk þeirra með það fyr­ir aug­um að hindra vöru­flutn­inga til Ísra­els­manna en Hút­ar eru hliðholl­ir Ham­as í þeirri skálmöld er ríkt hef­ur frá inn­rás sam­tak­anna í Ísra­el 7. októ­ber. Hafa fæst þeirra skipa sem sætt hafa árás­um þeirra verið á leið til Ísra­els að sögn út­gerða.

Hút­ar hafa ekki tjáð sig um árás­ina í dag en ekki er lengra síðan en í gær að banda­rískt her­skip skaut niður flug­skeyti þeirra sem beint var að skip­inu.

mbl.is