Nýjar gervihnattamyndir sýna tvo sigkatla

Grímsvötn | 22. janúar 2024

Nýjar gervihnattamyndir sýna tvo sigkatla

Vatnshæð í Gígjukvísl er nú aftur orðin lík því sem hún var áður en hlaupa tók úr Grímsvötnum.

Nýjar gervihnattamyndir sýna tvo sigkatla

Grímsvötn | 22. janúar 2024

Gervihnattamynd með merkingum Veðurstofu.
Gervihnattamynd með merkingum Veðurstofu. Kort/Veðurstofa Íslands

Vatns­hæð í Gígju­kvísl er nú aft­ur orðin lík því sem hún var áður en hlaupa tók úr Grím­svötn­um.

Vatns­hæð í Gígju­kvísl er nú aft­ur orðin lík því sem hún var áður en hlaupa tók úr Grím­svötn­um.

Hlaupið náði há­marki í ánni fyr­ir um það bil viku og hef­ur vatns­hæðin farið lækk­andi síðan.

Hlaupórói sem mæld­ist á jarðskjálfta­mæli á Gríms­fjalli hef­ur líka dvínað og er nú kom­inn niður í eðli­legt horf.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni.

Seg­ir þar að frá því á mánu­dag­inn í síðustu viku hafi 21 jarðskjálfti mælst í Grím­svötn­um, þar af tveir skjálft­ar yfir tveim­ur að stærð.

Gæti hafa mynd­ast nú eða verið eldri ketill

Þá er bent á að í Grím­s­vatna­hlaup­inu árið 2021 hafi mynd­ast sig­ketill – sprung­in dæld á yf­ir­borði jök­uls­ins, suðaust­ur af Gríms­fjalli. Hann sé nærri far­vegi hlaup­anna und­ir jökl­in­um..

„Starfs­menn Veður­stof­unn­ar, sem voru á ferð á Vatna­jökli í síðustu viku að sinna mæla­rekstri, sáu móta fyr­ir sig­katli á svipuðum stað. Við skoðun á gervi­tungla­mynd­um frá því í gær, 21. janú­ar, sjást tveir sig­katl­ar suðaust­ur af Gríms­fjalli,“ seg­ir í til­kynn­ingu Veður­stof­unn­ar.

„Ann­ar þeirra er sá sem myndaðist í hlaup­inu 2021 en hinn gæti hafa mynd­ast í ný­af­stöðnu hlaupi eða verið eldri ketill sem hef­ur virkj­ast aft­ur. Sig­katl­arn­ir eru nærri ferðaleið aust­ur af Gríms­fjalli og æski­legt að forðast ketill­inn á ferð um þær slóðir.“

Hnit fyr­ir staðsetn­ingu sig­katl­anna eru eft­ir­far­andi:

  • Sig­ketill GV-33: 64°23,611' og -17°13,017' (baug­hnit, WGS-84)
  • Nýr sig­ketill: 64°23,766' og -17°12,729' (baug­hnit, WGS-84)
Veðurstofan bendir á tvo sigkatla við Grímsvötn.
Veður­stof­an bend­ir á tvo sig­katla við Grím­svötn. Kort/​Veður­stofa Íslands

Kóðinn aft­ur orðinn grænn

Þegar jök­ul­hlaupið hófst var flug­litakóði fyr­ir eld­stöðina færður upp á gult vegna þess að aukn­ar lík­ur þóttu á eld­gosi í kjöl­far þrýstilétt­is eft­ir að vatn flæddi úr Grím­svötn­um.

„Þar sem jök­ul­hlaup­inu er lokið og eng­ar skamm­tíma breyt­ing­ar í virkni hafa mælst verður flug­litakóðinn aft­ur færður niður á grænt,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þó er rifjað upp að til lengri tíma litið hafi virkni í Grím­svötn­um verið þó nokk­ur og síðustu fimm mánuði hafi fjöldi jarðskjálfta verið yfir þeim fjölda sem telst eðli­leg bak­grunns­virkni.

„Ef til eld­goss kæmi í Grím­svötn­um er gert ráð fyr­ir því að ákafr­ar aukn­ing­ar í smá­skjálfta­virkni yrði vart áður en gos hæf­ist. Vís­inda­menn Veður­stof­unn­ar og Jarðvís­inda­stofn­un­ar munu áfram fylgj­ast mjög náið með Grím­svötn­um og miðla upp­lýs­ing­um ef virkni eykst frek­ar.“

mbl.is