Náðu að afstýra stórslysi

Jemen | 27. janúar 2024

Náðu að afstýra stórslysi

Tekist hefur að slökkva eldinn sem kom upp í olíuskipinu Marlin Luanda, eftir að Hútar hæfðu skipið með eldflaug seint í gærkvöldi þegar skipið var á siglingu um Aden-flóa.

Náðu að afstýra stórslysi

Jemen | 27. janúar 2024

Eldur logaði í olíuskipinu eftir árás Húta þegar herskipin þrjú …
Eldur logaði í olíuskipinu eftir árás Húta þegar herskipin þrjú sigldu að því. AFP

Tek­ist hef­ur að slökkva eld­inn sem kom upp í ol­íu­skip­inu Marlin Luanda, eft­ir að Hút­ar hæfðu skipið með eld­flaug seint í gær­kvöldi þegar skipið var á sigl­ingu um Aden-flóa.

Tek­ist hef­ur að slökkva eld­inn sem kom upp í ol­íu­skip­inu Marlin Luanda, eft­ir að Hút­ar hæfðu skipið með eld­flaug seint í gær­kvöldi þegar skipið var á sigl­ingu um Aden-flóa.

Um borð í skip­inu er afar eld­fim­ur farm­ur: Nafta, eða nokk­urs kon­ar vetn­is­blanda í vökv­a­formi sem skyld er hrá­ol­íu.

Eft­ir árás­ina kom upp mik­ill eld­ur í einu far­ang­urs­rýma skips­ins.

Þrjú her­skip til aðstoðar

Til aðstoðar skip­inu sigldu banda­ríska her­skipið USS Car­ney, franska freigát­an FS Alsace og ind­verska freigát­an INS Visak­hapatnam.

Í til­kynn­ingu frá banda­ríska hern­um seg­ir nú að skip­in þrjú hafi veitt bráðnauðsyn­lega aðstoð við að slökkva eld­inn. Auk þess var áhöfn­inni sjálfri komið til hjálp­ar en hún hafði þegar þar var komið sögu þurrausið eig­in tæki og tól til að ráða niður­lög­um elds­ins.

Áhöfn­ina skipa 22 Ind­verj­ar og einn Bangla­dessi.

Áhöfn olíuskipsins óskaði eftir aðstoð. Myndin er tekin um borð …
Áhöfn ol­íu­skips­ins óskaði eft­ir aðstoð. Mynd­in er tek­in um borð í ind­versku freigát­unni sem sigldi til aðstoðar. AFP

Manns­líf í húfi og hætta á um­hverf­is­skemmd­um

„Þökk sé þess­um skjótu viðbrögðum banda­rísku, ind­versku og frönsku sjó­herj­anna hef­ur eld­ur­inn verið slökkt­ur. Ekk­ert mann­fall varð við árás­ina, skipið held­ur enn sjó og hef­ur snúið aft­ur á leið sína,“ seg­ir í til­kynn­ingu hers­ins.

Tekið er fram að náðst hafi að af­stýra stór­slysi þar sem manns­líf hafi verið í húfi, auk sjálfs skips­ins, og hætt hafi verið við mikl­um um­hverf­isskaða.

„Þess­ar ólög­legu aðgerðir hafa ekk­ert að gera með átök­in í Gasa. Hvorki skipið né áhöfn þess hafa nokkra teng­ingu við Ísra­el. Hút­ar hafa skotið skeyt­ing­ar­laust á Rauða hafið og miðað á skip sem hafa þýðingu fyr­ir fleiri en fjöru­tíu lönd víða um heim.“

mbl.is