Rýfur þögnina um Óskarstilnefningar Barbie

Óskarsverðlaunin | 1. febrúar 2024

Rýfur þögnina um Óskarstilnefningar Barbie

Það kom mörgum á óvart þegar leikkonan Margot Robbie og leikstjórinn Greta Gerwig hlutu hvorugar Óskarstilnefningu fyrir stórmyndina Barbie. Hins vegar hlutu leikararnir Ryan Gosling og America Gerrera tilnefningar sem besti leikari og besta leikkona í aukahlutverki. 

Rýfur þögnina um Óskarstilnefningar Barbie

Óskarsverðlaunin | 1. febrúar 2024

Margot Robbie fór með aðalhlutverk í stórmyndinni Barbie sem gerði …
Margot Robbie fór með aðalhlutverk í stórmyndinni Barbie sem gerði allt vitlaust þegar hún kom út á síðasta ári. AFP

Það kom mörg­um á óvart þegar leik­kon­an Margot Robbie og leik­stjór­inn Greta Gerwig hlutu hvor­ug­ar Óskarstil­nefn­ingu fyr­ir stór­mynd­ina Barbie. Hins veg­ar hlutu leik­ar­arn­ir Ryan Gosl­ing og America Ger­rera til­nefn­ing­ar sem besti leik­ari og besta leik­kona í auka­hlut­verki. 

Það kom mörg­um á óvart þegar leik­kon­an Margot Robbie og leik­stjór­inn Greta Gerwig hlutu hvor­ug­ar Óskarstil­nefn­ingu fyr­ir stór­mynd­ina Barbie. Hins veg­ar hlutu leik­ar­arn­ir Ryan Gosl­ing og America Ger­rera til­nefn­ing­ar sem besti leik­ari og besta leik­kona í auka­hlut­verki. 

Á dög­un­um kom Robbie fram í svo­kölluðu „Q&A“ sem haldið var af Aca­demy Muse­um, en fram kem­ur á vef Daily Mail að þar hafi hún sagt að Gerwig hefði átt að vera til­nefnd. 

„Auðvitað finnst mér að Greta eigi að vera til­nefnd sem besti leik­stjór­inn, því það sem hún gerði er eitt­hvað sem maður ger­ir einu sinni á ferl­in­um, einu sinni á æv­inni, það er það sem hún áorkaði í raun og veru. En þetta hef­ur verið ótrú­legt ár fyr­ir all­ar kvik­mynd­irn­ar,“ sagði hún. 

Marg­ir höfðu bú­ist við því að Robbie yrði til­nefnd sem besta leik­kona í aðal­hlut­verki og Gerwig sem besti leik­stjór­inn. Robbie ræddi ekki um hvað henni finn­ist um að hafa sjálf ekki hlotið til­nefn­ingu, en hún lagði áherslu á að þau væru him­in­lif­andi yfir því að kvik­mynd­in hafi hlotið átta Óskarstil­nefn­ing­ar. 

Gosl­ing von­svik­inn yfir til­nefn­ing­un­um

„Við ætluðum að gera eitt­hvað sem myndi breyta menn­ingu, hafa áhrif á menn­ingu, bara hafa ein­hvers kon­ar áhrif. Og það hef­ur þegar gert það, og í sum­um til­fell­um, mun meira en okk­ur dreymdi um. Og það eru sann­ar­lega stærstu verðlaun­in sem gætu komið út úr þessu,“ sagði hún. 

Á dög­un­um tjáði Gosl­ing sig um til­nefn­ing­arn­ar, en hann sagðist vera gríðarlega von­svik­inn yfir því að hvorki Robbie né Gerwig hefðu hlotið til­nefn­ingu. 

mbl.is