Bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur

Kjaramál sjómanna | 7. febrúar 2024

Bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur

„Ég er mjög bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur að þessu sinni. Ég held að við höfum náð flestu því inn sem menn kvörtuðu yfir í síðasta samningi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, í Morgunblaðinu í dag um nýjan kjarasamning sjómanna við Samtök Fyrirtækja í sjávarútvegi.

Bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur

Kjaramál sjómanna | 7. febrúar 2024

Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Ljósmynd/Sjómannasamband Íslands.

„Ég er mjög bjart­sýnn á að samn­ing­ur­inn verði samþykkt­ur að þessu sinni. Ég held að við höf­um náð flestu því inn sem menn kvörtuðu yfir í síðasta samn­ingi,“ seg­ir Val­mund­ur Val­munds­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands, í Morg­un­blaðinu í dag um nýj­an kjara­samn­ing sjó­manna við Sam­tök Fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Samn­ing­ur­inn verður kynnt­ur fyr­ir sjó­mönn­um og síðan verða greidd at­kvæði um hann. Hefst at­kvæðagreiðslan kl. 12 mánu­dag­inn 12. fe­brú­ar og henni lýk­ur kl. 15. föstu­dag­inn 16. fe­brú­ar. Stjórn SFS mun og taka af­stöðu til samn­ings­ins.

Fulltrúar sjómanna og útvegsmanna skrifuðu undir samninginn.
Full­trú­ar sjó­manna og út­vegs­manna skrifuðu und­ir samn­ing­inn. Ljós­mynd/​Sjó­manna­sam­band Íslands

Samn­ing­ur­inn fel­ur í sér tals­verða hækk­un kaup­trygg­ing­ar, auk­in líf­eyr­is­rétt­indi og des­em­berupp­bót frá ár­inu 2028.

„Það er alltaf ánægju­legt að klára verk­efni sem okk­ur hafa verið fal­in. Þessi ábyrgð fór ekk­ert frá okk­ur þótt sjó­menn hafi fellt samn­ing fyr­ir ári, verk­efnið síðan þá hef­ur fal­ist í að átta okk­ur á því hvað það var sem olli óánægju sjó­manna og þá að reyna að koma til móts við þær óánægjuradd­ir og það er sú niðurstaða sem við sjá­um í dag,“ seg­ir Heiðrún Lind Marteins­dótt­ir fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

mbl.is