„Ekki til að hafa stórar áhyggjur af“

Grímsvötn | 7. febrúar 2024

„Ekki til að hafa stórar áhyggjur af“

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir að jökulhlaupið sem varð úr Grímsvötnum í síðasta mánuði hafi ekki verið sá þrýstiléttir sem menn töldu að gæti verið nægur til að koma af stað eldgosi.

„Ekki til að hafa stórar áhyggjur af“

Grímsvötn | 7. febrúar 2024

Þorvaldur Þórðarson.
Þorvaldur Þórðarson. mbl.is/Arnþór Birkisson

Þor­vald­ur Þórðar­son, pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands, seg­ir að jök­ul­hlaupið sem varð úr Grím­svötn­um í síðasta mánuði hafi ekki verið sá þrýstilétt­ir sem menn töldu að gæti verið næg­ur til að koma af stað eld­gosi.

Þor­vald­ur Þórðar­son, pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands, seg­ir að jök­ul­hlaupið sem varð úr Grím­svötn­um í síðasta mánuði hafi ekki verið sá þrýstilétt­ir sem menn töldu að gæti verið næg­ur til að koma af stað eld­gosi.

„Miðað við hvernig staðan er á landris­inu í Grím­svötn­um og hversu lang­ur tími er liðin frá síðasta gosi þar þá má bú­ast við gosi í Grím­svötn­um á næst­unni en það get­ur líka dreg­ist um nokk­ur ár,“ seg­ir Þor­vald­ur við mbl.is, en jök­ul­hlaupið í janú­ar var lítið.

Grím­svötn gjósa að meðaltali einu sinni til tvisvar á hverj­um ára­tug en sein­ast gaus þar fyr­ir tæp­lega 13 árum. Landrisið er meira en það var að há­marki fyr­ir síðasta gos og skjálfta­virkni hef­ur auk­ist á umliðnum árum.

„Við þurf­um í sjálfu sér ekki að hafa stór­ar áhyggj­ur af Grím­svötn­um. Þetta eru gos sem myndu byrja með 10-15 kíló­metra háum gosmekki sem yrði í gangi í rúm­an sól­ar­hring, síðan færi að draga úr gos­inu og inn­an þriggja daga yrði þetta hálf­gert púður,“ seg­ir Þor­vald­ur.

Hann seg­ir að gjósku­fallið myndi af­mark­ast við jök­ul­inn og fólk gæti kannski fundið eitt­hvað fyr­ir áhrif­um í sveit­un­um í kring. 

Magnús Tumi Guðmunds­son, pró­fess­or í jarðeðlis­fræði við Há­skóla Íslands, sagði við mbl.is í síðasta mánuði að Grím­svötn séu búin að „fylla í alla dálk­ana“ í und­ir­bún­ings­ferli sínu fyr­ir eld­gos.

mbl.is