Líst ekki illa á samning sjómanna

Kjaramál sjómanna | 8. febrúar 2024

Líst ekki illa á samning sjómanna

Forystumenn vélstjóra meta þessa dagana hvort nýgerður kjarasamningur Sjómannasambands Íslands (SÍ) og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gæti hentað þeim, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. VM og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur eru enn með lausa samninga en vélstjórar felldu í atkvæðagreiðslu síðastliðið vor kjarasamning sem þá var gerður.

Líst ekki illa á samning sjómanna

Kjaramál sjómanna | 8. febrúar 2024

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir félagið nú skoða samninginn …
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir félagið nú skoða samninginn sem sjómenn gerðu við SFS. mbl.is/Eggert Jóhannesson

For­ystu­menn vél­stjóra meta þessa dag­ana hvort ný­gerður kjara­samn­ing­ur Sjó­manna­sam­bands Íslands (SÍ) og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) gæti hentað þeim, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu. VM og Sjó­manna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­vík­ur eru enn með lausa samn­inga en vél­stjór­ar felldu í at­kvæðagreiðslu síðastliðið vor kjara­samn­ing sem þá var gerður.

„Við erum svona að skoða þenn­an samn­ing og reyna að aðlaga hann aðeins að okk­ur,“ sagði Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son formaður VM í gær, spurður álits á nýju sjó­manna­samn­ing­un­um „Ég tel að menn hafi náð að sníða nokkra galla af þess­um fellda samn­ingi og svo hafa menn líka fengið þarna inn ein­hver atriði sem eru til bóta.“

Kveðst Guðmund­ur vona að tak­ast muni að aðlaga samn­ing­inn að fé­lags­mönn­um hans svo hægt verði að bera hann und­ir at­kvæði í fé­lag­inu. Meg­in­krafa vél­stjóra er að fá tíma­kaupið leiðrétt sem snýr að störf­um vél­stjóra í landi en laun þeirra hafa staðið í stað frá 2019.

„Ég á von á að funda með samn­inga­nefnd­inni á morg­un eða hinn og þá tök­um við ákvörðun um hvort við kjós­um um sama samn­ing eða ekki,“ seg­ir Guðmund­ur.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is