Ætlar þú að vera alveg löðrandi í fjallinu?

Fatastíllinn | 11. febrúar 2024

Ætlar þú að vera alveg löðrandi í fjallinu?

Skíðavertíðin stendur sem hæst þessa dagana og keppist fólk við að þeytast niður brekkurnar. Eitt er að vera góður á skíðum eða bretti – annað er að vera þessi sem vekur eftirtekt fyrir góðan fatasmekk.

Ætlar þú að vera alveg löðrandi í fjallinu?

Fatastíllinn | 11. febrúar 2024

Adam Driver og Lady Gaga voru eftirminnileg í hlutverkum sínum …
Adam Driver og Lady Gaga voru eftirminnileg í hlutverkum sínum í kvikmyndinni House of Gucci. Hér eru þau uppáklædd í ítölsku Ölpunum.

Skíðavertíðin stend­ur sem hæst þessa dag­ana og kepp­ist fólk við að þeyt­ast niður brekk­urn­ar. Eitt er að vera góður á skíðum eða bretti – annað er að vera þessi sem vek­ur eft­ir­tekt fyr­ir góðan fatasmekk.

Skíðavertíðin stend­ur sem hæst þessa dag­ana og kepp­ist fólk við að þeyt­ast niður brekk­urn­ar. Eitt er að vera góður á skíðum eða bretti – annað er að vera þessi sem vek­ur eft­ir­tekt fyr­ir góðan fatasmekk.

Vetrarsokkar frá Loro Piana.
Vetr­ar­sokk­ar frá Loro Pi­ana.

Adam Dri­ver og Lady Gaga voru eft­ir­minni­leg í hlut­verk­um sín­um í kvik­mynd­inni Hou­se of Gucci. Hann lék Maurizio Gucci og hún fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Pat­riziu Reggi­ani. Í kvik­mynd­inni fóru þau í ít­ölsku Alp­ana til að lyfta sér upp, fá hvíld frá sjálf­um sér og öfga­full­um hvers­dags­leik­an­um. Það get­ur verið svo gott fyr­ir fólk að fara aðeins í brekk­urn­ar, fá fjalla­loft í lung­un og skemmta sér. Klæðaburður Dri­ver og Gaga var upp á 12 af 10 mögu­leg­um. Eig­andi tísku­húss gat nátt­úr­lega ekki verið eins og ræf­ill í Ölp­un­um og held­ur ekki kon­an hans. Hann klædd­ist ljósri kaðlapeysu með rúllukraga og var í hvít­um skíðabux­um við. Hann státaði af ein­föld­um stíl en var löðrandi í lúx­us á sama tíma.

Hvítar skíðabuxur frá Bogner.
Hvít­ar skíðabux­ur frá Bogner.

Peys­an úr kasmír – ekki gervi­efni. Hárið vel blásið með nettri og síðri herraklipp­ingu – eng­ar ut­an­bæjar­stríp­ur og eng­in skeg­gol­ía. Bara heiðarleg næntís fín­heit. Hann var í raun ekki með ósvipaða hár­greiðslu og fréttamaður­inn Bogi Ágústs­son skartaði þegar hann var ung­ur og fersk­ur. Reggi­ani var hins veg­ar gulli skreytt. Í svört­um skíðaföt­um með belti um mittið. Gull­háls­fest­ar, gulleyrna­lokk­ar og gull­arm­band und­ir­strikuðu stöðu henn­ar, svo ekki sé minnst á hvítu pels-húf­una. Þótt gull­fest­ar séu kannski ekki al­veg hættu­laus­ar þegar brunað er niður brekk­urn­ar má hafa þær und­ir peys­unni í stór­svig­inu og lauma þeim upp úr krag­an­um þegar stoppað er í næsta skíðaskála.

Helly Hansen úlpa fæst í Útilíf.
Helly Han­sen úlpa fæst í Útil­íf.
Smith hjálpur fæst í Fjallakofanum.
Smith hjálp­ur fæst í Fjalla­kof­an­um.
Skíðaföt frá Zara.com.
Skíðaföt frá Zara.com.
Hvítar skíðabuxur frá 66°Norður.
Hvít­ar skíðabux­ur frá 66°Norður.
Rossignol skíðagleraugu fást í Útilíf.
Rossignol skíðagler­augu fást í Útil­íf.

Hvít­ar bux­ur – hvít­ir skór!

Skíðatísk­an í ár kall­ar á eitt­hvað hvítt, eitt­hvað svart, kannski eitt­hvað rautt og kannski eitt­hvað bleikt. Það skipt­ir máli að skíðadressið sé hugsað í heild sinni þannig að bux­urn­ar passi við úlp­una, skíðapeys­una, skíðahjálm­inn og lúff­urn­ar. Hvít­ar bux­ur eru vin­sæl­ar þessa dag­ana, hvort sem þær eru þröng­ar og lögu­leg­ar eða með góðri hreyfi­vídd. Úlpur með hettu og belti um mittið fara vel við hvítu skíðabux­urn­ar. Ef skíðaúlp­an þín er ekki með belti gæt­ir þú smellt belti á hana. Það er þó ekki nóg að vera bara í smart skíðadressi í brekk­un­um. Það skipt­ir máli að vera í sama stíl þegar farið er í brekk­urn­ar og þá koma Moon Boots eða skór í svipuðum stíl sterk inn. Góð húfa, sólgler­augu og arfasmart skíðagler­augu eru líka atriði sem þarf að hugsa út í. Gott er líka að koma sér upp mittistösku sem pass­ar við skíðaföt­in.

Goldbergh skíðadress fæst Hjá Hrafnhildi.
Gold­bergh skíðadress fæst Hjá Hrafn­hildi.
Kuldaskór sem fást á Zara.com.
Kulda­skór sem fást á Zara.com.
Isabella Rakonic í skíðapeysu sem er merkt skíðabæ nokkrum í …
Isa­bella Ra­konic í skíðapeysu sem er merkt skíðabæ nokkr­um í Aust­ur­ríki.
Nadía Atladóttir í mjög flottum skíðagalla í frönsku Ölpunum. Hann …
Nadía Atla­dótt­ir í mjög flott­um skíðagalla í frönsku Ölp­un­um. Hann var keypt­ur hjá Prettylittlet­hing.com.

Hvernig væri að fá sér sam­fest­ing?

Svo eru það sam­fest­ing­arn­ir, sem njóta vin­sælda þessa dag­ana. Fót­bolta­kon­an Nadía Atla­dótt­ir klædd­ist til dæm­is glæsi­leg­um sam­fest­ingi á dög­un­um þegar hún skíðaði í frönsku Ölp­un­um. Skíðagall­inn var keypt­ur á vefsíðunni Prettylittlet­hing.com. sem sel­ur alls kon­ar fatnað sem lífg­ar upp á til­ver­una. Þar er hægt að kaupa alls kon­ar skíðaföt sem munu án efa veita ómælda gleði. Hlý und­ir­föt þurfa að fara með í fjallið og vandaðir ull­ar­sokk­ar. Ull­ar­sokk­arn­ir frá Loro Pi­ana toppa skíðaferðina, það er að segja ef þér finnst app­el­sínurautt, grænt, ljós­blátt og hvítt fara vel sam­an.

Shiseido sólarvörn SPF50 er nauðsynleg í hverja skíðaferð.
Shiseido sól­ar­vörn SPF50 er nauðsyn­leg í hverja skíðaferð.
Goldbergh skíðabuxur fást Hjá Hrafnhildi.
Gold­bergh skíðabux­ur fást Hjá Hrafn­hildi.
Rossignol skíðagleraugu fást í Útilíf.
Rossignol skíðagler­augu fást í Útil­íf.
Mackage skíðajakki.
Macka­ge skíðajakki.
Vetrarhattur frá 66°Norður.
Vetr­ar­hatt­ur frá 66°Norður.
mbl.is