„Ekki kjörstaða að vera í“

Kjaramál sjómanna | 17. febrúar 2024

„Ekki kjörstaða að vera í“

„Það sem hefur skipt mína menn rosalega miklu máli er þetta tímakaup sem þeir eru að vinna á þegar þeir eru í landi og ég er kominn með vilyrði fyrir því að geta komið því í þokkalegt horf,“ segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmiðnaðarmanna, VM, í samtali við mbl.is um horfur í kjarasamningsmálum þar á bæ nú er Sjómannasambandið hefur nýsamþykkt sinn samning.

„Ekki kjörstaða að vera í“

Kjaramál sjómanna | 17. febrúar 2024

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmiðnaðarmanna, kvaðst reikna …
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmiðnaðarmanna, kvaðst reikna með samningaviðræðum í næstu viku er hann var spurður út í stöðuna á vettvangi kjaramála. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það sem hef­ur skipt mína menn rosa­lega miklu máli er þetta tíma­kaup sem þeir eru að vinna á þegar þeir eru í landi og ég er kom­inn með vil­yrði fyr­ir því að geta komið því í þokka­legt horf,“ seg­ir Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður Fé­lags vél­stjóra og málmiðnaðarmanna, VM, í sam­tali við mbl.is um horf­ur í kjara­samn­ings­mál­um þar á bæ nú er Sjó­manna­sam­bandið hef­ur ný­samþykkt sinn samn­ing.

„Það sem hef­ur skipt mína menn rosa­lega miklu máli er þetta tíma­kaup sem þeir eru að vinna á þegar þeir eru í landi og ég er kom­inn með vil­yrði fyr­ir því að geta komið því í þokka­legt horf,“ seg­ir Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður Fé­lags vél­stjóra og málmiðnaðarmanna, VM, í sam­tali við mbl.is um horf­ur í kjara­samn­ings­mál­um þar á bæ nú er Sjó­manna­sam­bandið hef­ur ný­samþykkt sinn samn­ing.

„Ég er nú orðinn þekkt­ur niðri í húsi sátta­semj­ara sem maður­inn sem skrif­ar helst ekki und­ir samn­inga,“ seg­ir Guðmund­ur með aðkenn­ingu að hlátri og seg­ir ein­hver atriði detta út úr samn­ingi VM sem gott sé að losna við og önn­ur atriði koma inn sem séu til bóta.

„Þurf­um bara að bera það í baklandið“

„En þetta er nátt­úru­lega ekki kjörstaða að vera í, stétt­ar­fé­lög sem verða svona eft­ir á hafa ekki mikið svig­rúm án þá mik­illi átaka. Nú er ör­ugg­lega óþol í rík­is­stjórn­inni að menn séu að fara að búa til verk­föll gagn­vart sjó­mönn­um, þannig að við erum að fara aðeins yfir texta og kauptaxta og svo þurf­um við bara að bera það í baklandið hvort þetta sé eitt­hvað sem við treyst­um okk­ur til að fara með í kosn­ingu,“ seg­ir formaður­inn af stöðu mála í kjara­samn­ing­um fé­lags­ins.

Aðspurður kveður Guðmund­ur hans fólk ekki hafa sett sér sér­stök tíma­mörk. „Síðast þegar ég heyrði í þeim sagði ég að við skyld­um bara heyr­ast eft­ir þessa helgi og sjá hvað við gæt­um gert í þeirri viku. Svo eru þarna fleiri fé­lög eft­ir, ég þarf að heyra í þeim, það eru bæði Grind­vík­ing­arn­ir og Sjó­manna­fé­lag Íslands, við stönd­um þarna þrír eft­ir ein­ir og ég hef trú á því að öll fé­lög­in fari með eitt­hvað svipað af stað,“ seg­ir hann.

En ertu þokka­lega bjart­sýnn á stöðuna þrátt fyr­ir allt og allt?

„Ef við náum að búa til eitt­hvað sem er vit í,“ svar­ar Guðmund­ur og vís­ar þar til tíma­kaups­ins í landi sem hann eyg­ir von um að koma í viðun­andi horf. „Ég þori eig­in­lega ekk­ert að segja um þetta fyrr en við erum bún­ir að eiga sam­talið í næstu viku,“ held­ur hann áfram og send­ir Sjó­manna­sam­band­inu því næst kveðju.

„Ég óska Sjó­manna­sam­band­inu og Val­mundi [Val­munds­syni for­manni] til ham­ingju með þenn­an ár­ang­ur, þetta var meira af­ger­andi en ég átti von á [...] Ég er svona sá sem er erfiðast­ur í taumi þegar kem­ur að því að enda hlut­ina. Maður vill alltaf aðeins meira,“ seg­ir Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM, að lok­um um samn­ings­stöðuna.

mbl.is