Mál leigubílstjórans til skoðunar hjá Samgöngustofu

Leigubílaþjónusta | 20. febrúar 2024

Mál leigubílstjórans til skoðunar hjá Samgöngustofu

Samgöngustofa hefur óskað eftir staðfestum upplýsingum frá lögreglu um leigubílstjórann sem grunaður er um nauðgun í byrjun febrúar. 

Mál leigubílstjórans til skoðunar hjá Samgöngustofu

Leigubílaþjónusta | 20. febrúar 2024

Mál leigubílstjórans á borði samgöngustofu.
Mál leigubílstjórans á borði samgöngustofu. Samsett mynd

Sam­göngu­stofa hef­ur óskað eft­ir staðfest­um upp­lýs­ing­um frá lög­reglu um leigu­bíl­stjór­ann sem grunaður er um nauðgun í byrj­un fe­brú­ar. 

Sam­göngu­stofa hef­ur óskað eft­ir staðfest­um upp­lýs­ing­um frá lög­reglu um leigu­bíl­stjór­ann sem grunaður er um nauðgun í byrj­un fe­brú­ar. 

Þetta staðfest­ir Þór­hild­ur Elín El­ín­ar­dótt­ir, sam­skipta­stjóri hjá Sam­göngu­stofu.

Skoða heim­ild­ir sín­ar til leyf­is­svipt­ing­ar 

Til út­skýr­ing­ar seg­ir Þór­hild­ur að málið sé til skoðunar hjá Sam­göngu­stofu í sam­hengi við ný lög um leigu­bif­reiðaakst­ur sem tóku gildi þann 1. apríl á síðasta ári. Þó lög­in séu ný­leg þá seg­ir Þór­hild­ur að ákveðin reynsla sé að fást af þeim.

Hún seg­ir þetta mál þó af þeirri stærðargráðu að það sé að sjálf­sögðu skoðað sér­stak­lega. 

„Við erum að kanna okk­ar heim­ild­ir í þess­um nýju lög­um, hversu langt okk­ar heim­ild­ir ná til að bregðast við með skýr­um hætti,“ seg­ir Þór­hild­ur.

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is er Sam­göngu­stofa að skoða heim­ild er varðar 16. grein lag­anna þar sem fjallað er um leyf­is­svipt­ingu leyf­is­hafa. 

Skoða þarf heim­ild til upp­lýs­inga­gjaf­ar 

Spurð hvort Sam­göngu­stofa hafi upp­lýs­inga­skyldu gagn­vart þeim leigu­bif­reiðastöðvum sem leigu­bíl­stjór­ar keyra fyr­ir, þegar mál sem þetta kem­ur upp, kveðst Þór­hild­ur ekki geta svarað því.

Hún seg­ir þó hvorki fjallað um slíkt í lög­um eða reglu­gerð og því sé heim­ild til upp­lýs­inga­gjaf­ar eitt­hvað sem þyrfti að skoða. 

Hún seg­ir málið flókið þar sem leigu­bíl­stjór­ar þurfi ekki að starfa fyr­ir leigu­bif­reiðastöð til að mega aka leigu­bif­reið og því starfi þeir ekki endi­lega fyr­ir aðra en sjálfa sig. Um er að ræða breyt­ingu sem tók gildi með nýju lög­un­um og hef­ur sætt nokk­urri gagn­rýni. 

Leigu­bíl­stjóri má ekki hafa fengið dóm fyr­ir kyn­ferðisaf­brot

Þór­hild­ur seg­ir margt gott sem fylgdi nýju lög­un­um og nefn­ir sem dæmi heim­ild Sam­göngu­stofu til að óska eft­ir gögn­um frá lög­reglu og ákæru­vald­inu þannig að stofn­un­in geti fylgt sínu eft­ir­lits­hlut­verki. 

Þá seg­ir hún að um­sækj­end­ur þurfi að upp­fylla ýmis skil­yrði og nefn­ir sem dæmi að þeir sem sæk­ist eft­ir leyfi til að aka leigu­bif­reið þurfi að skila inn hreinu sak­arvott­orði. Í því sam­hengi seg­ir Þór­hild­ur skýrt að þeir sem hafi fengið dóm fyr­ir kyn­ferðisaf­brot fái ekki leyfi. 

Nýta reynslu af lög­un­um til end­ur­skoðunar 

Þór­hild­ur árétt­ar að í lög­um um leigu­bif­reiðaakst­ur sé kveðið á um að lög­in skuli end­ur­skoðuð með til­liti til reynslu af þeim breyt­ing­um á reglu­um­hverfi leigu­bif­reiða sem lög­in fela í sér.

Skal þessi end­ur­skoðun vera haf­in eigi síðar en 1. janú­ar 2025 og seg­ir Þór­hild­ur að Sam­göngu­stofa muni nýta þá reynslu sem safn­ast hef­ur af fram­kvæmd lag­anna í und­ir­bún­ings­vinnu með ráðuneyt­inu við end­ur­skoðun þeirra.

mbl.is