Kallar eftir upplýsingum um meintan ofbeldismann

Leigubílaþjónusta | 21. febrúar 2024

Kallar eftir upplýsingum um meintan ofbeldismann

Framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík gagnrýnir að alvarlegt ofbeldisbrot sé nýtt til þess að fjalla um lesti leigubílalöggjafarinnar. Hún kallar eftir því að umræðan verði slitin í sundur og að þolandinn fái frið. 

Kallar eftir upplýsingum um meintan ofbeldismann

Leigubílaþjónusta | 21. febrúar 2024

Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík.
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fram­kvæmda­stjóri Hopp í Reykja­vík gagn­rýn­ir að al­var­legt of­beld­is­brot sé nýtt til þess að fjalla um lesti leigu­bíla­lög­gjaf­ar­inn­ar. Hún kall­ar eft­ir því að umræðan verði slit­in í sund­ur og að þoland­inn fái frið. 

Fram­kvæmda­stjóri Hopp í Reykja­vík gagn­rýn­ir að al­var­legt of­beld­is­brot sé nýtt til þess að fjalla um lesti leigu­bíla­lög­gjaf­ar­inn­ar. Hún kall­ar eft­ir því að umræðan verði slit­in í sund­ur og að þoland­inn fái frið. 

„Nýja lög­gjöf­in mun aldrei stoppa of­beld­is­menn, þessi maður hefði alltaf getað framið sitt af­brot sama hvernig lög­in hefðu verið,“ seg­ir Sæ­unn Ósk Unn­steins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Hopp í Reykja­vík, og und­ir­strik­ar að um­fjall­an­ir um þessi mál fari ekki sam­an. 

Um er að ræða mál leigu­bíl­stjóra sem grunaður er um gróft kyn­ferðis­brot gegn konu. Málið átti sér stað í byrj­un fe­brú­ar og í kjöl­farið sendu stétt­ar­fé­lög leigu­bíl­stjóra, B:Í.L.S og Frami, frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kem­ur að fé­lög­in hafi verið búin að vara stjórn­völd við af­leiðing­um laga­breyt­inga um leigu­bíla­akst­ur. 

Mik­il­vægt að fá upp­lýs­ing­ar frá Sam­göngu­stofu 

Í sam­tali við mbl.is seg­ist Sæ­unn harma að um­rætt brot hafi átt sér stað og hef­ur kallað eft­ir upp­lýs­ing­um frá Sam­göngu­stofu um meint­an of­beld­is­mann til að geta gengið úr skugga um að um­rædd­ur ein­stak­ling­ur sé ekki með virk­an aðgang í far­veitu Hopp. 

Hún út­skýr­ir að með breyt­ing­um nýju lög­gjaf­ar­inn­ar, sem tók gildi á síðasta ári, starfi all­ir leigu­bíl­stjór­ar, sem hafa rekstr­ar­leyfi sem leigu­bíl­stjóri á Íslandi, sem sjálf­stætt starf­andi verk­tak­ar en ekki í umboði leigu­bif­reiðastöðvar eða far­veitu þó þeir aki fyr­ir slík­ar.

Sæ­unn seg­ir gríðarlega mik­il­vægt að Sam­göngu­stofa, sem fer með leyf­is­veit­ing­ar, hafi heim­ild­ir til að upp­lýsa far­veit­ur og leigu­bíla­stöðvar, eða vald til að stöðva rekst­ar­leyfi viðkom­andi, þannig að hægt sé að taka ein­stak­ling­inn úr um­ferð á meðan málið er til rann­sókn­ar hjá lög­reglu.

Þannig að neyt­and­inn get­ur þá alla­vega stólað á að far­veit­un­rn­ar geti lokað fyr­ir þá bíl­stjóra sem eru til rann­sókn­ar hjá lög­regl­unni,“ seg­ir hún. 

Sæ­unn seg­ir tækn­ina jafn­framt veita upp­lýs­ing­ar um leigu­bíla­ferðir og gagn­sæi hvað varðar leyf­is­veit­ing­ar. Þrátt fyr­ir það geti eng­in tækni tekið fyr­ir of­beld­is­hegðun.

Þótt hvorki Sam­göngu­stofa né lög­regla hafi upp­lýst Hopp um meint­an of­beld­is­mann hafi þau hjá Hopp nýtt sér upp­lýs­ing­ar sem fram hafa komið og gengið úr skugga um að viðkom­andi sé ekki með virk­an aðgang í Hopp-app­inu. 

Of seint að end­ur­skoða lög­in í lok árs

Spurð út þá gagn­rýni sem nýju lög­in hafa sætt og yf­ir­vof­andi end­ur­skoðun á þeim svar­ar Sæ­unn að brýnt sé að end­ur­skoða þau og það sem fyrst

Það hafi þó ekk­ert með meint of­beld­is­brot að gera held­ur snú­ist það um að nýju lög­in hafi verið skrifuð til að þjóna því fyr­ir­komu­lagi sem var til staðar á sín­um tíma í leigu­bíla­akstri.

„Það er alltof seint að skoða þau í byrj­un næsta árs. Við erum í stöðugu sam­tali við Sam­göngu­stofu og ráðuneytið til að benda á þá hluti sem okk­ur finnst hafa farið úr­skeiðis í lög­un­um. Lög­un­um sem ganga í raun ekki nógu langt og eru ekki að sinna því hlut­verki sem þau átttu að sinna sem var m.a. að fjölga leigu­bíl­stjór­um í hluta­störf­um.“

mbl.is