Dóttir Önnu prinsessu elskaði Ísland

Kóngafólk | 27. febrúar 2024

Dóttir Önnu prinsessu elskaði Ísland

Breska kóngafólkið Zara og Mike Tindall fóru í frí til Íslands á dögunum. Zara sem er dóttir Önnu prinsessu er næ­stelsta ömmu­barn Elísa­bet­ar Breta­drottn­ing­ar heitinnar. Eiginmaður hennar, Mike Tindall, deildi myndum frá ferðinni á Instagram-síðu sinni. 

Dóttir Önnu prinsessu elskaði Ísland

Kóngafólk | 27. febrúar 2024

Mike og Zara Tindall skelltu sér til Íslands nýlega.
Mike og Zara Tindall skelltu sér til Íslands nýlega. Samsett mynd

Breska kónga­fólkið Zara og Mike Tindall fóru í frí til Íslands á dög­un­um. Zara sem er dótt­ir Önnu prins­essu er næ­stelsta ömmu­barn Elísa­bet­ar Breta­drottn­ing­ar heit­inn­ar. Eig­inmaður henn­ar, Mike Tindall, deildi mynd­um frá ferðinni á In­sta­gram-síðu sinni. 

Breska kónga­fólkið Zara og Mike Tindall fóru í frí til Íslands á dög­un­um. Zara sem er dótt­ir Önnu prins­essu er næ­stelsta ömmu­barn Elísa­bet­ar Breta­drottn­ing­ar heit­inn­ar. Eig­inmaður henn­ar, Mike Tindall, deildi mynd­um frá ferðinni á In­sta­gram-síðu sinni. 

„Takk fyr­ir Ísland!!! Því­lík­ur staður,“ skrifaði Mike Tindall þegar hann deildi mynd­um og mynd­skeiðum sem hann klippti sam­an. Tindall-hjón­in vörðu tíma í Reykja­vík en nutu líka ís­lenskr­ar nátt­úru þrátt fyr­ir snjó og frost. 

Það sem sam­ein­ar Zöru og Mike Tindall er ástríða þeirra á íþrótt­um en Zara er fyrr­ver­andi heims­meist­ari í hestaíþrótt­um og Mike Tindall var í breska rúbbí­landsliðinu. Það kem­ur því ekki á óvart að þau hafi ákveðið að kafa í ís­jök­ul­köldu vatni og lenda í fleiri æv­in­týr­um á Íslandi í stað þess að liggja á sól­ar­strönd. 

Hér fyr­ir neðan má sjá mynd­skeiðið sem Mike Tindall deildi.  

View this post on In­sta­gram

A post shared by Mike Tindall (@mike_t­indall12)

mbl.is