Felur í sér styttri vinnuviku og aukið mótframlag

Kjaramál sjómanna | 29. febrúar 2024

Felur í sér styttri vinnuviku og aukið mótframlag

Hækkun kauptryggingar, stytting vinnuvikunnar og aukið mótframlag í lífeyrissjóð eru meðal breytinga sem fylgja kjarasamningi vélstjóra á fiskiskipum, en atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VM (Félags vélstjóra og málmtæknimanna) vegna samnings þeirra og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hófst á þriðjudag og stendur til 5. mars næstkomandi.

Felur í sér styttri vinnuviku og aukið mótframlag

Kjaramál sjómanna | 29. febrúar 2024

Nýr kjarasamningur VM og SFS hefur í för með sér …
Nýr kjarasamningur VM og SFS hefur í för með sér þó nokkrar breytingar fyrir vélastjóra. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Hækk­un kaup­trygg­ing­ar, stytt­ing vinnu­vik­unn­ar og aukið mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð eru meðal breyt­inga sem fylgja kjara­samn­ingi vél­stjóra á fiski­skip­um, en at­kvæðagreiðsla meðal fé­lags­manna VM (Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna) vegna samn­ings þeirra og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hófst á þriðju­dag og stend­ur til 5. mars næst­kom­andi.

Hækk­un kaup­trygg­ing­ar, stytt­ing vinnu­vik­unn­ar og aukið mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð eru meðal breyt­inga sem fylgja kjara­samn­ingi vél­stjóra á fiski­skip­um, en at­kvæðagreiðsla meðal fé­lags­manna VM (Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna) vegna samn­ings þeirra og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hófst á þriðju­dag og stend­ur til 5. mars næst­kom­andi.

Í kynn­ingu á inni­haldi nýs kjara­samn­ings sem birt hef­ur verið á vef VM kem­ur fram að samið var um að breyta ákvæði samn­inga um sölu afla á upp­sjáv­ar­skip­um og er lagt til að út­gerð verði skyllt að funda með áhöfn og full­trú­um stétt­ar­fé­laga bæði við upp­haf vertíðar og inn­an við tveim­ur mánuðum eft­ir að vertíð lýk­ur. Á slík­um fundi skal fara yfir og út­skýra for­send­ur fyr­ir upp­gjöri skip­verja, söl­unót­ur afurða sýnd­ar og til­kynnt um mögu­leg­ar leiðrétt­ing­ar.

Áður var aðeins fundað með full­trú­um í úr­sk­urðar­nefnd fyr­ir vertíð.

Í tengsl­um við upp­gjör er einnig í samn­ingn­um gert ráð fyr­ir að und­ir­máls­fisk­ur (smá­fisk­ur) verði ekki tal­inn með við út­reikn­ing á vegnu meðal­verði þorsks og ýsu. Áður var und­ir­máls­fisk­ur lát­in gilda 3%.

Hækkað fram­lag í líf­eyr­is­sjóð

Gert er ráð fyr­ir að út­reikn­ur hluta verði breytt­ur. „Hægt verður að velja á milli tveggja leiða en við und­ir­rit­un kjara­samn­ings fara all­ir skip­verj­ar sjálf­krafa í leið A. Fram­lag í líf­eyr­is­sjóð hækk­ar úr 12% í 15,5%. Sjó­menn geta valið að fá 3,5% viðbótar­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð frá út­gerðinni. Það þýðir að sjó­menn gefa eft­ir hluta af skipta­verðinu fyr­ir 3,5% viðbótar­fram­lagið. Þeir sem ekki vilja fá 3,5% aukið mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð frá út­gerðinni geta valið leið B, og fá þá 0,5% hækk­un á skipta­verðinu.“

Í kynn­ing­unni er vísað til dæm­is þar sem há­seti á 40 metra tog­ara með 1,5 millj­arðs afla­verðmæti mun sjá fram á aukn­ar greiðsur í líf­eyr­is­sjóð og bæt­ast kjör­in því um tæp­lega 316 þúsund krón­ur frá fyrri samn­ing­um með svo­kallaðri A-leið. Velji hann hins veg­ar leið B hækk­ar hlut­ur hans um 140 þúsund krón­ur.

Fulltrúar Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna og velastjórafélags Grindavíkur …
Full­trú­ar Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna og Sjó­manna og vela­stjóra­fé­lags Grinda­vík­ur und­ir­rituðu kjara­samn­inga við SFS 22. fe­brú­ar. Ljós­mynd/​VM

Hærri trygg­ing og styttri vinnu­vika

Kaup­trygg­ing fyrsta og ann­ars vél­stjóra er sú sama og í þeim samn­ingi sem vél­stjór­ar felldu á síðasta ári en tíma­kaup vél­stjóra mun breyt­ast í sam­ræmi við breyt­ing­ar á laun­um vél- og iðnfræðinga eft­ir þriggja ára starf í takti við kjara­samn­ing SA og VM.

„Þetta hef­ur í för með sér 36,1% hækk­un tíma­kaups vél­stjóra frá 2019. Það er 13,3% hærra tíma­kaup en í felld­um samn­ingi sl. vet­ur,“ seg­ir í kynn­ing­unni.

Þá verður vinnu­vika vél­stjóra stytt. „Tek­inn er upp virk­ur vinnu­tími sem telst vera sá tími sem starfsmaður er við störf. Dag­leg viðvera er virk­ur vinnu­tími að viðbætt­um hlé­um frá vinnu. Við upp­töku virks vinnu­tíma eru 36 klst. greidd­ar að jafnaði á viku m.v. fullt starf. Þetta hef­ur í för með sér að yf­ir­vinna hefst fyrr en áður.“

Des­em­berupp­bót

Des­em­berupp­bót er ný­mæli í kjara­samn­ingi vél­stjóra og er í nýj­um samn­ingi gert ráð fyr­ir greiðslu fullra des­em­berupp­bóta séu lög­skrán­ing­ar­dag­ar 160 eða fleiri. Veik­inda­dag­ar, fjar­vist­ir vegna slysa telja með, sem og tíma­vinna í landi. Telj­ast átta tím­ar í landi heill vinnu­dag­ur.

Laus­ráðnir skip­verj­ar fá hlut­fall af des­em­berupp­bót, hafi þeir að lág­marki náð 50 lög­skrán­ing­ar­dög­um.

Fjár­hæð des­em­berupp­bót­ar verður sú sama og sam­kvæmt kjara­samn­ingi SA og Starfs­greina­sam­bands­ins hverju sinni.

Kynna samn­ing­inn

Samn­ing­ur­inn gild­ir til 31. des­em­ber 2033 en hægt er að segja hon­um upp frá 31. des­em­ber 2028 með árs fyr­ir­v­ar, en með sex mánaða fyr­ir­vara eft­ir 31. des­em­ber 2030.

For­svars­menn VM kynntu inni­hald samn­ings­ins á sér­stök­um fundi sem fram fór á þriðju­dag en slík­ir fund­ir verða einnig haldn­ir í dag og á morg­un.

mbl.is