Segir samninganefnd vélstjóra sniðgengna

Kjaramál sjómanna | 1. mars 2024

Segir samninganefnd vélstjóra sniðgengna

Fulltrúi í samninganefnd Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) segir nefndina hafa verið sniðgengna af forystu stéttarfélagsins í tengslum við gerð nýs kjarasamnings við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vegna vélstjóra á fiskiskipum.

Segir samninganefnd vélstjóra sniðgengna

Kjaramál sjómanna | 1. mars 2024

Ekki eru allir í samninganefnd vésltjóra sáttir með kjarasamninginn sem …
Ekki eru allir í samninganefnd vésltjóra sáttir með kjarasamninginn sem félagsmenn VM greiða nú atkvæði um. Telur amk. einn nefndarmanna að nefndin hafi verið sniðgengin við gerð samningsins. mbl.is/Árni Sæberg

Full­trúi í samn­inga­nefnd Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) seg­ir nefnd­ina hafa verið sniðgengna af for­ystu stétt­ar­fé­lags­ins í tengsl­um við gerð nýs kjara­samn­ings við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) vegna vél­stjóra á fiski­skip­um.

Full­trúi í samn­inga­nefnd Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) seg­ir nefnd­ina hafa verið sniðgengna af for­ystu stétt­ar­fé­lags­ins í tengsl­um við gerð nýs kjara­samn­ings við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) vegna vél­stjóra á fiski­skip­um.

„Ég sit í samn­inga­nefnd og vand­inn er sá að þessi nefnd fund­ar ekki. Ég setið í nefnd­inni síðan 2019 og við erum búin að funda fjór­um sinn­um,“ seg­ir Þröst­ur Auðuns­son í sam­tali við 200 míl­ur. „Það er hluti af samn­inga­nefnd­inni sem er al­farið á móti þess­um samn­ing­um og vinnu­brögðunum í kring­um þetta.“

Greint var frá því 22. fe­brú­ar að full­trú­ar VM hefðu und­ir­ritað nýj­an kjara­samn­ing fyr­ir vél­stjóra og hófst at­kvæðagreiðsla um samn­ing­ana á þriðju­dag siðastliðinn en at­kvæðagreiðslu lýk­ur 5. mars.

Önnur aðferð en síðast

Þröst­ur seg­ir það fyr­ir­komu­lag sem viðhaft hafi verið eft­ir að nýr kjara­samn­ing­ur hafi verið gerður hafi verið frá­brugðið því sem gerðist á síðasta ári, en sá samn­ing­ur var felld­ur í at­kvæðagreiðslu.

Fund­ur hafi verið boðaður þegar fyr­ir lágu drög að end­an­leg­um samn­ingi og hann bor­inn und­ir samn­inga­nefnd vél­stjóra. Nefnd­in hafnaði samn­ings­drög­un­um og var í kjöl­farið unnið að breyt­ing­um á samn­ingn­um áður en hann var bor­inn und­ir nefnd­ina á ný sem samþykkti drög­in og samn­ing­ur­inn síðan und­ir­ritaður og efnt til at­kvæðagreiðslu um hann meðal fé­lags­manna.

Ann­arri aðferð hafi verið beitt í síðustu viku. „Við fáum upp­kast af samn­ingi í tölvu­pósti og til stend­ur að funda um þenn­an samn­ing með ein­um eða öðrum hætti auk þess sem beðið var um at­huga­semd­ir. Við send­um nokkr­ir úr nefnd­inni inn at­huga­semd­ir. Svo klukk­an um tíu eða ell­efu að kvöldi 21. fe­brú­ar fáum við tölvu­póst um að hann [Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM] ætli að skrifa und­ir morg­un­inn eft­ir, en það var aldrei hald­inn fund­ur um þenn­an samn­ing. Greini­lega var búið að vinna ein­hverja vinnu sem við tók­um ekki þátt í. Ég spyr hvers vegna það eigi að hafa nefnd sem fund­ar ekki?“

Þröst­ur út­skýr­ir að aðal­málið í þessu sé ekki endi­lega hvaða stefna verði fyr­ir val­inu held­ur að það sé unnið að sam­eig­in­legri niður­stöðu. „Það þarf að ræða mál­in. For­ystu­menn þessa fé­lags halda spil­un­um mjög þétt að sér.“

Kveðst hann hafa mætt á kynn­ing­ar­fund vegna kjara­samn­ings­ins á þriðju­dag og lýst aftsöðu sinni.

Vill ræða efn­is­atriðin

Auk þess sem Þröst­ur gagn­rýn­ir aðferðafræðina bend­ir hann á fjölda atriða sem hon­um finnst bet­ur megi fara í kjara­samn­ingn­um og atriði sem hann hefði viljað sjá rætt á fundi samn­inga­nefnd­ar.

„Það er til dæm­is ekk­ert farið í fisk­verð í þess­um samn­ingi. Jú, það er talað um að funda tvisvar [með áhöfn] fyr­ir og eft­ir vertíð og það er bara til að segja þeim hvernig þetta [upp­gjör] var. Svo skipt­ir engu þó norsku og fær­eysku tog­ar­arn­ir landa þarna fyr­ir aust­an, jafn­vel úr sömu torf­unni, þá eru þeir með helm­ingi hærra verð en Íslend­ing­arn­ir. Það er eng­inn áhugi á að hrófla við þessu,“ seg­ir Þröst­ur.

Hann finn­ur einnig að samn­ings­tím­an­um sem eru níu ár og bend­ir á að samn­ing­ar annarra á vinnu­markaði séu fjög­ur.

Þá seg­ir hann fram­setn­ingu á launa­hækk­un ekki rétta. „Þeir tala um hækk­un á tíma­kaupi en þessi hækk­un er 6% yfir verðbólgu frá 2019. Það er öll hækk­un­in þó hún sé eitt­hvað stærri á papp­írn­um.“

„Ég er kannski rót­tæk­ur, ég veit það, en það á að vera hægt að ræða þetta,“ seg­ir hann að lok­um.

mbl.is