Ráðstefna um skaðlegt inniloft, loftræsingu og heilsu fer fram í Háskólanum í Reykjavík í dag. Viðburðurinn er hluti af fundaröðinni Rakaskemmdir og mygla, en dagskrá hefst klukkan 13.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, opnar ráðstefnuna og í lok hennar mun Kristján Kristjánsson fréttamaður stýra pallborðsumræðum. Ólafur Wallevik, prófessor við iðn- og tæknifræðideild HR, er fundarstjóri.
Dagskrá er eftirfarandi:
13:00 Setning. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
13:10 Markmið ráðstefnunnar. Ólafur Wallevik fundarstjóri.
13:20 Inniloft, efnisval, rakaskemmdir og heilsa. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir.
13:40 Húsnæði og heilsa - Sýn læknis. Dr. Kristín Sigurðardóttir.
14:00 What we know and should know about ventilation. Dr. Pawel Wargocki, prófessor DTU.
14:30 Kaffi og kleina
14:50 Loftræsing, loftskipti og sjálfbærni. Alma Dagbjört Ívarsdóttir.
15:05 Vélræn eða náttúruleg loftræsing. Eiríkur Ástvald Magnússon.
15:20 Þarf byggingarannsóknir? Svana Helen Björnsdóttir, formaður VFÍ.
15:35 Pallborð: Þarf rannsóknir?