Ekki fórnað í „leik Pútíns“

Rússland | 5. mars 2024

Ekki fórnað í „leik Pútíns“

Þjóðverjar reyna nú sitt ýtrasta til að gera sem minnst úr leka sem varð til þess að 38 mínútna löng upptaka af samtali þýskra herforingja – að því er talið er – dúkkaði upp á rússneskum samfélagsmiðlum á föstudaginn og mátti ekki heyra betur en að lögð væru á ráðin um flugskeytaárás á Rússland eða rússneskan herafla í Úkraínu.

Ekki fórnað í „leik Pútíns“

Rússland | 5. mars 2024

Boris Pistorius greinir frá stöðu mála á blaðamannafundi í dag …
Boris Pistorius greinir frá stöðu mála á blaðamannafundi í dag og kveður traust gagnvart Þýskalandi óskaddað þrátt fyrir lekann óheppilega. AFP/Tobias Schwarz

Þjóðverj­ar reyna nú sitt ýtr­asta til að gera sem minnst úr leka sem varð til þess að 38 mín­útna löng upp­taka af sam­tali þýskra her­for­ingja – að því er talið er – dúkkaði upp á rúss­nesk­um sam­fé­lags­miðlum á föstu­dag­inn og mátti ekki heyra bet­ur en að lögð væru á ráðin um flug­skeyta­árás á Rúss­land eða rúss­nesk­an herafla í Úkraínu.

Þjóðverj­ar reyna nú sitt ýtr­asta til að gera sem minnst úr leka sem varð til þess að 38 mín­útna löng upp­taka af sam­tali þýskra her­for­ingja – að því er talið er – dúkkaði upp á rúss­nesk­um sam­fé­lags­miðlum á föstu­dag­inn og mátti ekki heyra bet­ur en að lögð væru á ráðin um flug­skeyta­árás á Rúss­land eða rúss­nesk­an herafla í Úkraínu.

Bera þýsk­ir ráðamenn því nú við að þarna hafi verið um hand­vömm að ræða og upp­töku­búnaður fyr­ir sím­töl verið virk­ur þegar hann átti ekki að vera það. „Hér urðu al­var­leg mis­tök sem ekki áttu að verða,“ sagði þýski varn­ar­málaráðherr­ann Bor­is Pistorius á blaðamanna­fundi fyrr í dag.

Kvaðst ráðherra hafa kannað málið hjá banda­mönn­um Þýska­lands til að full­vissa sig um að traust gagn­vart land­inu væri enn til staðar og svo hafi verið.

Hringdi frá Singa­pore

Úkraínu­menn hafa þrýst á Þjóðverja und­an­farið að senda þeim lang­dræg Taur­us-flug­skeyti sem hafa allt að 500 kíló­metra drægi, en Olaf Scholz kansl­ari hef­ur haldið aft­ur af af­hend­ingu flug­skeyt­anna af ótta við að hún dragi Þýska­land inn í stríðið.

Í sím­tal­inu má heyra her­for­ingj­ana ræða hugs­an­leg skot­mörk flug­skeyt­anna, þar á meðal brúna yfir Kerch-sundið milli Krímskaga og Krasnódar-héraðsins á meg­in­landi Rúss­lands. Hafa rúss­nesk yf­ir­völd haldið því fram að sam­talið sýni svo óyggj­andi sé að vest­ur­veld­in hlut­ist bein­lín­is til um gang stríðsins.

Talið er að lek­inn hafi komið til af því að einn viðmæl­end­anna á síma­fundi, sem hald­inn var gegn­um We­bEx-sam­skipta­kerfi þýska hers­ins, hringdi frá flug­sýn­ingu í Singa­pore og fór þá óvarða sam­skipta­leið inn á fund­inn. Þar með hafi ein­hverj­um ut­anaðkom­andi tek­ist að nálg­ast upp­töku af sím­tal­inu og koma henni í dreif­ingu.

Boðar Pistorius ít­ar­lega rann­sókn á hler­un­inni eða lek­an­um en gef­ur ekk­ert upp um per­sónu­leg­ar af­leiðing­ar fyr­ir fund­ar­menn á síma­fund­in­um. „Ég fórna ekki mín­um bestu for­ingj­um í leik Pútíns,“ hef­ur AFP-frétta­stof­an eft­ir ráðherra.

mbl.is