SVG og VM samþykktu samninginn

Kjaraviðræður | 5. mars 2024

SVG og VM samþykktu samninginn

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

SVG og VM samþykktu samninginn

Kjaraviðræður | 5. mars 2024

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fagnar því að búið sé …
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fagnar því að búið sé að semja við rúmlega 90% sjómanna á skipum fyrirtækja innan SFS. mbl.is/Árni Sæberg

Sjó­manna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­vík­ur (SVG) og Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) hafa samþykkt kjara­samn­ing við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS).

Sjó­manna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­vík­ur (SVG) og Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) hafa samþykkt kjara­samn­ing við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS).

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá SFS.

Felldu samn­ing í fyrra

VM samþykkti samn­ing­inn með 67,6% at­kvæða en 31,3% greiddu at­kvæði gegn samn­ingn­um. Kosn­ingaþátt­taka var um 64%.

SVG samþykkti samn­ing­inn með 56,4% at­kvæða en 38,3% voru á móti. Kosn­ingaþátt­taka var 43.6%.

Í til­kynn­ingu seg­ir að breyt­ing­ar hafi verið gerðar á samn­ingn­um frá því í fe­brú­ar í fyrra, en þá var hann felld­ur. 

Þá seg­ir að tíma­kaup hafi verið hækkað, gefið hef­ur verið aukið svig­rúm til upp­sagn­ar samn­ings­ins, skerpt hef­ur verið á rétt­ar­stöðu í tengsl­um við slysa- og veik­inda­rétta þeirra sem ráðnir eru með tíma­bund­inni ráðningu meðal ann­ars. 

„Við fögn­um því að hafa nú gilda samn­inga við rúm­lega 90% sjó­manna á skip­um fyr­ir­tækja inn­an SFS. Það eyk­ur fyr­ir­sjá­an­leika sem trygg­ir hags­muni okk­ar allra sem vinn­um í þess­ari grein, ekki síst sjó­mann­anna sjálfra,“ er haft eft­ir Heiðrúnu Lind Marteins­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóri SFS í til­kynn­ingu.

mbl.is