Mættu í Óskarspartí þremur mánuðum eftir skilnaðarfréttir

Óskarsverðlaunin | 11. mars 2024

Mættu í Óskarspartí þremur mánuðum eftir skilnaðarfréttir

Kanadíski leikarinn Eric McCormack, sem fór á kostum í hlutverki sínu sem lögfræðingurinn Will Truman í gamanþáttaröðinni Will & Grace, var meðal þeirra sem mættu í Óskarsverðlaunaveislu hjá Elton John í nótt. 

Mættu í Óskarspartí þremur mánuðum eftir skilnaðarfréttir

Óskarsverðlaunin | 11. mars 2024

Hjónin hafa verið gift í 26 ár.
Hjónin hafa verið gift í 26 ár. Samsett mynd

Kanadíski leik­ar­inn Eric McCormack, sem fór á kost­um í hlut­verki sínu sem lög­fræðing­ur­inn Will Trum­an í gam­anþáttaröðinni Will & Grace, var meðal þeirra sem mættu í Óskar­sverðlauna­veislu hjá Elt­on John í nótt. 

McCormack gekk bláa dreg­il­inn og brosti til ljós­mynd­ara ásamt eig­in­konu sinni, Janet Hold­en. Það kom vafa­lítið mörg­um á óvart að sjá þau sam­an, en Hold­en sótti um skilnað frá leik­ar­an­um í nóv­em­ber, degi fyr­ir þakk­ar­gjörðardag­inn. Var ástæðan sögð vera óá­sætt­an­leg­ur ágrein­ing­ur milli hjón­anna. 

Hjón­in virt­ust ham­ingju­söm er þau stilltu sér upp á dregl­in­um. Þau héldu þétt­ings­fast hvort utan um annað, brostu til ljós­mynd­ara og voru í góðum fé­lags­skap í veisl­unni. McCormack og Hold­en sátu á borði með fyr­ir­sæt­unni Heidi Klum og eig­in­manni henn­ar, Tom Kaulitz. 

McCormack og Hold­en hafa verið gift í 26 ár og eiga einn upp­kom­inn son, Finnig­an. Hjón­in kynnt­ust við gerð þáttaserí­unn­ar Lonesome Dove árið 1994 og gengu í hjóna­band tveim­ur árum síðar. 

mbl.is