Oppenheimer sópaði til sín verðlaunum

Óskarsverðlaunin | 11. mars 2024

Oppenheimer sópaði til sín verðlaunum

Kvikmyndin Oppenheimer stóð uppi sem sigurvegari gærkvöldsins á 96. Óskarsverðlaunahátíðinni.

Oppenheimer sópaði til sín verðlaunum

Óskarsverðlaunin | 11. mars 2024

Robert Downey Jr., Da'Vine Joy Randolph, Emma Stone og Cillian …
Robert Downey Jr., Da'Vine Joy Randolph, Emma Stone og Cillian Murphy hrepptu öll verðlaun fyrir frábæra frammistöðu í hlutverkum sínum. AFP/Rodin Eckenroth

Kvik­mynd­in Opp­en­heimer stóð uppi sem sig­ur­veg­ari gær­kvölds­ins á 96. Óskar­sverðlauna­hátíðinni.

Kvik­mynd­in Opp­en­heimer stóð uppi sem sig­ur­veg­ari gær­kvölds­ins á 96. Óskar­sverðlauna­hátíðinni.

Mynd­in var til­nefnd í þrett­án flokk­um og hlaut alls sjö verðlaun, þar á meðal fyr­ir bestu kvik­mynd­ina, besta leik­stjór­ann, besta karl­kyns leik­ara í aðal­hlut­verki og auka­hlut­verki.

Cristoph­er Nol­an leik­stýrði mynd­inni, Cilli­an Murp­hy fór með aðal­hlut­verkið og Robert Dow­ney Jr. hlaut verðlaun­in fyr­ir auka­hlut­verk í mynd­inni.

Robert Downey Jr. tekur á móti verðlaunum sem Oppenheimer hlaut …
Robert Dow­ney Jr. tek­ur á móti verðlaun­um sem Opp­en­heimer hlaut fyr­ir bestu kvik­mynd­ina. AFP/​Kevin Win­ter

Besta leik­kona í aðal­hlut­verki í annað sinn

Verðlaun­in fyr­ir bestu leik­konu í aðal­hlut­verki hlaut Emma Stone fyr­ir hlut­verk sitt í Poor things. Er þetta í annað sinn á ferl­in­um sem hún tek­ur á móti þeim verðlaun­um. Kvik­mynd­in var einnig verðlaunuð fyr­ir list­ræna stjórn­un, bún­inga­hönn­un og förðun.

Da'Vine Joy Randolph hlaut verðlaun fyr­ir bestu leik­konu í auka­hlut­verki fyr­ir hlut­verk sitt í The Holdo­vers.

Barbie hlaut ein verðlaun

Ein verðlaun féllu í skaut kvik­mynd­ar­inn­ar Barbie og voru þau fyr­ir besta upp­runa­lega lagið, sem söng­kon­an Bill­ie Eil­ish og bróðir henn­ar Finn­eas sömdu. 

Úkraína eignaðist sinn fyrsta ósk­ar­sverðlauna­hafa í gær þegar kvik­mynd­in 20 Days in Mariupol fékk verðlaun fyr­ir bestu heim­ild­ar­mynd­ina. Þá hlutu Bret­ar verðlaun fyr­ir bestu alþjóðlegu mynd­ina, The Zone of in­t­erest.

mbl.is