Gosling líkt við Marilyn Monroe

Óskarsverðlaunin | 13. mars 2024

Gosling líkt við Marilyn Monroe

Óskarsverðlaunin eru nýafstaðin og eru flestir sammála um að söngatriði Ryan Gosling hafi verið hápunktur hátíðarinnar. Kanadíski leikarinn flutti lagið I’m Just Ken úr kvikmyndinni Barbie og sló algjörlega í gegn, bæði hjá gestum og þeim sem heima sátu.

Gosling líkt við Marilyn Monroe

Óskarsverðlaunin | 13. mars 2024

Atriði beggja eru ógleymanleg!
Atriði beggja eru ógleymanleg! Samsett mynd

Óskar­sverðlaun­in eru ný­af­staðin og eru flest­ir sam­mála um að söng­atriði Ryan Gosl­ing hafi verið hápunkt­ur hátíðar­inn­ar. Kanadíski leik­ar­inn flutti lagið I’m Just Ken úr kvik­mynd­inni Barbie og sló al­gjör­lega í gegn, bæði hjá gest­um og þeim sem heima sátu.

Óskar­sverðlaun­in eru ný­af­staðin og eru flest­ir sam­mála um að söng­atriði Ryan Gosl­ing hafi verið hápunkt­ur hátíðar­inn­ar. Kanadíski leik­ar­inn flutti lagið I’m Just Ken úr kvik­mynd­inni Barbie og sló al­gjör­lega í gegn, bæði hjá gest­um og þeim sem heima sátu.

Þegar Gosl­ing lauk flutn­ingi sín­um varð allt vit­laust á sam­fé­lags­miðlum, en net­verj­ar keppt­ust við að hrósa leik­ar­an­um og öll­um sem áttu þátt í að skapa þetta eft­ir­minni­lega atriði.

Var Gosl­ing að heiðra minn­ingu Mari­lyn Mon­roe?

Marg­ir net­verj­ar hafa líkt atriðinu við eina fræg­ustu kvik­mynda­senu allra tíma, dans- og söng­atriði hinn­ar goðsagna­kenndu Mari­lyn Mon­roe, Diamonds Are A Gir­l’s Best Friend, úr kvik­mynd­inni Gent­lemen Prefer Blondes frá ár­inu 1953.

Fjöl­marg­ir hafa bent á lík­indi atriðanna. Gosl­ing klædd­ist dem­ants­skreytt­um Barbie-bleik­um jakka­föt­um og var með bleika hanska á hönd­un­um, alls ekki ólíkt því sem leik­kon­an klædd­ist.

Mon­roe, sem lést árið 1962, klædd­ist bleik­um síðkjól í söng- og dans­atriðinu og var einnig með bleika hanska og skreytt glitrandi demönt­um.

Dans­ar­arn­ir sem dönsuðu við hlið Gosl­ing virðast klædd­ir í föt sem vísa til hinn­ar 71 árs gömlu kvik­mynda­senu, en all­ir eru þeir klædd­ir dökk­um jakka­föt­um, vest­um og með ljós­ar slauf­ur og bleika borða. 

mbl.is