Líta leigubílasvindl alvarlegum augum

Leigubílaþjónusta | 13. mars 2024

Líta leigubílasvindl alvarlegum augum

„Þetta stenst ekki, það er á ábyrgð skólans að menn sem taka þessi próf svindli ekki og taki prófin án þess að nota óheimil hjálpargögn,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu í samtali við Morgunblaðið, þegar viðbragða stofnunarinnar var leitað við frétt blaðsins í gær þar sem sagt var frá dæmum um að útlendingar svindluðu á svokölluðum „harkaraprófum“ sem veita réttindi til að aka leigubíl.

Líta leigubílasvindl alvarlegum augum

Leigubílaþjónusta | 13. mars 2024

Samgöngustofan segir það vera á ábyrgð Ökuskólans í Mjódd að …
Samgöngustofan segir það vera á ábyrgð Ökuskólans í Mjódd að nemendur í leigubílanámi svindli ekki á svokölluðum harkaraprófum. Samsett mynd

„Þetta stenst ekki, það er á ábyrgð skól­ans að menn sem taka þessi próf svindli ekki og taki próf­in án þess að nota óheim­il hjálp­ar­gögn,“ seg­ir Þór­hild­ur Elín El­ín­ar­dótt­ir sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu í sam­tali við Morg­un­blaðið, þegar viðbragða stofn­un­ar­inn­ar var leitað við frétt blaðsins í gær þar sem sagt var frá dæm­um um að út­lend­ing­ar svindluðu á svo­kölluðum „hark­ara­próf­um“ sem veita rétt­indi til að aka leigu­bíl.

Það er Öku­skól­inn í Mjódd sem ann­ast nám­skeiðshaldið og próf­in.

Skól­ans að ákveða

Spurð um hvort hún gæti út­skýrt hvernig út­lend­ing­ar ættu að geta tekið próf á ís­lensku þegar þeir hvorki skilji náms­efnið né spurn­ing­arn­ar á próf­un­um, seg­ir hún að það sé skól­ans að ákveða að hafa bæði próf­in og náms­efnið á ís­lensku.

„Í ann­an stað er heim­ilt að vera með túlk á nám­skeiðinu og þeir geta fengið túlkaþjón­ustu í próf­inu, eða verið með lokað kerfi þar sem aðeins er leyfður aðgang­ur að Google Translate. Skól­inn hef­ur ekki gert það og í ein­hverj­um til­fell­um leyft mönn­um að vera með sím­ann hjá sér. Ef ein­hverj­ir eru að nota sím­ann í óheiðarleg­um til­gangi, þá er það skól­ans að tryggja að nem­end­ur fari í gegn­um próf­in án þess að svindla,“ seg­ir Þór­hild­ur Elín.

Hún seg­ir Sam­göngu­stofu þó hafa heyrt að menn hafi verið að hafa rangt við, en aldrei fengið form­leg­ar ábend­ing­ar þar um. Við því hafi verið brugðist með auknu eft­ir­liti. „En ábyrgð fram­kvæmdaaðilans er að sjá til þess að menn fari ekki í gegn­um prófið með svindli,“ seg­ir hún.

Hægt er að nálg­ast um­fjöll­un­ina í heild sinni í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is