Þessu pakka tískudrottningar fyrir ferð til Parísar

Borgarferðir | 18. mars 2024

Þessu pakka tískudrottningar fyrir ferð til Parísar

Parísarborg er þekkt fyrir að vera mikil tískuborg, enda hafa mörg af frægustu tískuhúsum heims sprottið upp þar. Einfaldleiki og fágað yfirbragð einkennir franska tísku sem heillar marga.

Þessu pakka tískudrottningar fyrir ferð til Parísar

Borgarferðir | 18. mars 2024

Frönsk tíska hefur heillað marga upp úr skónum í gegnum …
Frönsk tíska hefur heillað marga upp úr skónum í gegnum árin. Samsett mynd

Par­ís­ar­borg er þekkt fyr­ir að vera mik­il tísku­borg, enda hafa mörg af fræg­ustu tísku­hús­um heims sprottið upp þar. Ein­fald­leiki og fágað yf­ir­bragð ein­kenn­ir franska tísku sem heill­ar marga.

Par­ís­ar­borg er þekkt fyr­ir að vera mik­il tísku­borg, enda hafa mörg af fræg­ustu tísku­hús­um heims sprottið upp þar. Ein­fald­leiki og fágað yf­ir­bragð ein­kenn­ir franska tísku sem heill­ar marga.

Á dög­un­um birt­ist viðtal við frönsku tískugyðjuna Je­anne Dam­as á ferðavef Condé Nast Tra­vell­er þar sem hún gaf les­end­um góð ráð þegar kem­ur að tísk­unni í Par­ís­ar­borg. Hún birti lista yfir átta flík­ur sem eru ómiss­andi í Par­ís og eiga því heima í ferðatösku tísku­drottn­inga sem hyggj­ast heim­sækja borg­ina.  

1. Ein­fald­ur blazer-jakki

Ef það er eitt­hvað sem set­ur punkt­inn yfir i-ið á dress­inu þá er það góður blazer-jakki. Það eru mik­il nota­gildi í slík­um jakka, en hann pass­ar bæði við galla­bux­ur og ein­fald­an topp en líka við fína kjóla og er því ómiss­andi í ferðatösk­una.

Damas mælir með því að jakkinn sé ekki of aðsniðinn …
Dam­as mæl­ir með því að jakk­inn sé ekki of aðsniðinn en þó ekki of víður held­ur. Skjá­skot/​In­sta­gram

2. Klass­ísk­ar galla­bux­ur

Fransk­ar kon­ur eru sér­fræðing­ar þegar kem­ur að góðum galla­bux­um. Dam­as mæl­ir með að all­ir taki með sér að minnsta kosti ein­ar góðar galla­bux­ur sem eru með beinu sniði og í hinum klass­íska fag­ur­bláa galla­buxna­lit. 

Klassískar gallabuxur klikka aldrei!
Klass­ísk­ar galla­bux­ur klikka aldrei! Skjá­skot/​In­sta­gram

3. Þægi­leg­ir en fín­ir skór

Fransk­ar kon­ur eru þekkt­ar fyr­ir að þurfa aldrei að skipta um skó – þær velja klass­íska og þægi­lega skó sem eru samt fín­ir og þær geta enst í all­an dag­inn. 

Það er lykilatriði að skórnir séu þægilegir en líka að …
Það er lyk­il­atriði að skórn­ir séu þægi­leg­ir en líka að þeir séu fín­ir. Skjá­skot/​In­sta­gram

4. Tíma­laus frakki

Trench-frakk­inn er tíma­laus flík sem virðist aldrei fara úr tísku. Klass­ísk­ur trench-frakki klikk­ar aldrei og pass­ar við flest dress, en þar að auki er hann hent­ug­ur fyr­ir ýmis veður­skil­yrði sem er alltaf plús.

Damas mælir með því að velja frakka í hlutlausum tónum …
Dam­as mæl­ir með því að velja frakka í hlut­laus­um tón­um með fal­leg­um smá­atriðum. Skjá­skot/​In­sta­gram

5. Hin full­komna taska

Það get­ur verið snúið að finna hina full­komnu tösku fyr­ir ferðalagið. Dam­as hef­ur þó kom­ist að því að klass­íska axl­artask­an sé best – hún er nógu stór fyr­ir það allra nauðsyn­leg­asta án þess að vera of fyr­ir­ferðamik­il. 

Damas bendir líka á hve þægilegt það er að geta …
Dam­as bend­ir líka á hve þægi­legt það er að geta hent tösk­unni á öxl­ina og látið hana hvíla þar yfir dag­inn. Skjá­skot/​In­sta­gram

6. Fylgi­hlut­ur sem gríp­ur augað

Dam­as mæl­ir með því að velja einn fylgi­hlut sem vek­ur at­hygli og tek­ur dressið upp á næsta stig. Til dæm­is lit­rík­ur tref­ill, fal­leg silk­is­læða, glitrandi eyrna­lokk­ar eða klass­ískt úr.

Það er hægt að nota fallegar silkislæður á hinn ýmsa …
Það er hægt að nota fal­leg­ar silk­is­læður á hinn ýmsa máta. Skjá­skot/​In­sta­gram

7. Navy-blá peysa

Klass­ísk­ar prjónapeys­ur eru ómiss­andi í ferðatösk­una. Navy-blái lit­ur­inn pass­ar full­kom­lega inn í franska tísku­heim­inn og pass­ar við nán­ast allt!

Navy-blái liturinn er vinsæll í Frakklandi.
Navy-blái lit­ur­inn er vin­sæll í Frakklandi. Skjá­skot/​In­sta­gram

8. Kjóll sem þú dress­ar upp og niður

Að lok­um er nauðsyn­legt að pakka fal­leg­um kjól sem hent­ar bæði að degi til og fram á kvöld. Það þarf að vera auðvelt að dressa kjól­inn upp og niður, til dæm­is með því að skipta úr flott­um striga­skóm yfir í fal­lega hæla­skó um kvöldið. 

Kjólar með fallegu blómamynstri hitta alltaf í mark.
Kjól­ar með fal­legu blóma­mynstri hitta alltaf í mark. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is