Hafa þrjá mánuði til að bregðast við

Öryggi sjófarenda | 19. mars 2024

Hafa þrjá mánuði til að bregðast við

Innviðaráðuneytið segist í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins hafa þrjá mánuði til að gera grein fyrir því hvernig það hyggst bregðast við tilmælum rannsóknarnefndar samgönguslysa um að setja reglur um hafn- og leiðsöguskyldu skipa í samræmi við ákvæði gildandi laga.

Hafa þrjá mánuði til að bregðast við

Öryggi sjófarenda | 19. mars 2024

Innviðaráðuneytið segist hafa þrjá mánuði til að bregðast við tilmælum …
Innviðaráðuneytið segist hafa þrjá mánuði til að bregðast við tilmælum Rannsóknanefnd samgönguslysa um að setja beri reglugerðir um leiðsöguskyldu í samræmi við ákvæði laga. Ljósmynd/Harpa Dögg Halldórsdóttir

Innviðaráðuneytið seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins hafa þrjá mánuði til að gera grein fyr­ir því hvernig það hyggst bregðast við til­mæl­um rann­sókn­ar­nefnd­ar sam­göngu­slysa um að setja regl­ur um hafn- og leiðsögu­skyldu skipa í sam­ræmi við ákvæði gild­andi laga.

Innviðaráðuneytið seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins hafa þrjá mánuði til að gera grein fyr­ir því hvernig það hyggst bregðast við til­mæl­um rann­sókn­ar­nefnd­ar sam­göngu­slysa um að setja regl­ur um hafn- og leiðsögu­skyldu skipa í sam­ræmi við ákvæði gild­andi laga.

Í skýrslu nefnd­ar­inn­ar um strand flutn­inga­skips­ins Wil­son Skaw á Húna­flóa á síðasta ári bein­ir hún því til innviðaráðuneyt­is­ins að setja um­rædda reglu­gerð, en slysið er sagt hafa átt sér stað vegna óná­kvæmra ra­f­rænna sigl­inga­korta og að ekki hafi verið nýtt­ur leiðsögumaður með þekk­ingu á svæðinu.

„Innviðaráðuneytið hef­ur fengið loka­skýrslu RNSA með um­rædd­um til­mæl­um. Ráðuneytið mun, í sam­vinnu við Sam­göngu­stofu, skoða til­mæl­in nán­ar og meta hvort og hvaða breyt­inga er þörf á gild­andi lög­um og reglu­gerðum,“ seg­ir í svari ráðuneyt­is­ins.

Í skýrsl­unni var Sam­göngu­stofa hvött til að upp­færa ra­f­ræna út­gáfu sigl­inga­korta, auk þess sem stofn­un­inni var bent á að henni ber að halda skrá yfir lög­gilta hafn­ar- og leiðsögu­menn og hafa slík­an lista aðgengi­leg­an. Ekki hef­ur borist svar frá Sam­göngu­stofu vegna fyr­ir­spurn­ar um þessa þætti.

mbl.is