Getur ekki endað með öðru en gosi

Askja | 26. mars 2024

Getur ekki endað með öðru en gosi

Skjálftahrina hófst í Öskju í gærmorgun og áttu skjálftarnir upptök sín norðvestan við Dyngjufjöll. Stærsti skjálftinn var 3,5 að stærð og reið yfir klukkan 10.40.

Getur ekki endað með öðru en gosi

Askja | 26. mars 2024

Askja.
Askja. mbl.is

Skjálfta­hrina hófst í Öskju í gær­morg­un og áttu skjálft­arn­ir upp­tök sín norðvest­an við Dyngju­fjöll. Stærsti skjálft­inn var 3,5 að stærð og reið yfir klukk­an 10.40.

Skjálfta­hrina hófst í Öskju í gær­morg­un og áttu skjálft­arn­ir upp­tök sín norðvest­an við Dyngju­fjöll. Stærsti skjálft­inn var 3,5 að stærð og reið yfir klukk­an 10.40.

Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræðing­ur seg­ir aðdrag­and­ann að næsta eld­gosi í Öskju hafa verið lang­an og að skýr merki séu um að þar sé eitt­hvað á seyði sem að lok­um leiði til eld­goss.

„Það get­ur ekki endað öðru­vísi,“ seg­ir Ármann.

„Við erum nátt­úru­lega búin að vera að bíða eft­ir henni. Hún er búin að vera að þenja sig í raun frá 2012 því þá bræddi hún af sér ís um há­vet­ur, sem er nú eig­in­lega ekki mögu­legt nema að þú bæt­ir hita út í vatnið.“

Bresk­ir vís­inda­menn séu með afar þétt og þar af leiðandi ná­kvæmt mæla­net á svæðinu og hafi um nokk­urt skeið bent á að í Öskju sé kvika sem sé létt­ari en önn­ur. Fari sú kvika af stað verði sprengigos á svæðinu.

„Ef eitt­hvað svo­leiðis fer af stað þá verður nátt­úru­lega sprengigos, en hvort það verður lítið eða stórt, það vit­um við ekki.“

Breyt­ing­ar hafa verið á landrisi við Öskju en af þrem­ur mæl­um á svipuðu svæði sýn­ir einn þeirra þó eng­ar breyt­ing­ar, sem sér­fræðing­ar Veður­stof­unn­ar hafa velt vöng­um yfir.

Ármann seg­ir aft­ur á móti ekki endi­lega óvenju­legt að mæl­arn­ir sýni ólík­ar niður­stöður enda sé Askja öðru­vísi eld­fjall en við höf­um áður verið að glíma við.

„Af því að þú ert kom­inn með þessa miklu sprungu sem mynd­ar öskj­una þá get­urðu verið að sjá mis­mun­andi hluti eft­ir því hvort þú ert inni í öskj­unni eða fyr­ir utan. Svo nátt­úr­lega bæt­ir ekki úr skák að við erum með heilt stöðuvatn þarna inni í öskj­unni og það eru eng­ir mæl­ar þar á botn­in­um. Þannig að við vit­um í raun­inni ekk­ert hvað ger­ist á botn­in­um í Öskju,“ seg­ir Ármann.

mbl.is