Einfalt föndurhorn í barnaherbergið

Föndur og afþreying | 7. apríl 2024

Einfalt föndurhorn í barnaherbergið

Barnaherbergið er griðarstaður barnsins og því þarf að huga að því að útbúa rými þar sem þau geta notið þess að leika sér, skapa, læra, hvíla sig og hlaða batteríin. Það er tilvalið að koma fyrir föndurhorni í herbergi barnsins og það þarf alls ekki að vera flókið. 

Einfalt föndurhorn í barnaherbergið

Föndur og afþreying | 7. apríl 2024

Það þarf ekki að vera flókið að koma fyrir föndurhorni …
Það þarf ekki að vera flókið að koma fyrir föndurhorni í herbergi barnsins! Samsett mynd

Barna­her­bergið er griðarstaður barns­ins og því þarf að huga að því að út­búa rými þar sem þau geta notið þess að leika sér, skapa, læra, hvíla sig og hlaða batte­rí­in. Það er til­valið að koma fyr­ir fönd­ur­horni í her­bergi barns­ins og það þarf alls ekki að vera flókið. 

Barna­her­bergið er griðarstaður barns­ins og því þarf að huga að því að út­búa rými þar sem þau geta notið þess að leika sér, skapa, læra, hvíla sig og hlaða batte­rí­in. Það er til­valið að koma fyr­ir fönd­ur­horni í her­bergi barns­ins og það þarf alls ekki að vera flókið. 

Fönd­ur­hornið ætti að vera nota­leg­ur staður þar sem barnið get­ur látið hug­mynda­flugið ráða för og kannað sköp­un­ar­gleði sína, en fönd­ur er afar þrosk­andi fyr­ir börn bæði and­lega og lík­am­lega. 

Fjöl­skyldu­vef­ur mbl.is tók sam­an nokkr­ar fal­leg­ar og hag­nýt­ar vör­ur sem gætu nýst við gerð fönd­ur­horns, allt frá fal­leg­um stól­um fyr­ir barnið að sitja í yfir í sniðugar fönd­ur­vör­ur. 

Eitt­hvað fyr­ir alla

Fyrsta skrefið er að finna góðan stól og borð sem hent­ar barn­inu og rým­inu. Úrval af fal­leg­um barna­hús­gögn­um hef­ur sjald­an verið betra en í dag og því ættu flest­ir að geta fundið eitt­hvað fyr­ir sinn smekk. 

Mouse-stólar og borð frá Nofred fást hjá Epal og koma …
Mou­se-stól­ar og borð frá Nof­red fást hjá Epal og koma í nokkr­um mis­mun­andi stærðum og lit­um. Ljós­mynd/​Nof­red.com
Little Atchitect Chair frá Ferm Living fæst hjá Petit og …
Little Atchitect Chair frá Ferm Li­ving fæst hjá Pe­tit og kost­ar 18.690 kr. Ljós­mynd/​Pe­tit.is
Borð frá Sebra fæst hjá Epal og kostar 17.900 kr.
Borð frá Sebra fæst hjá Epal og kost­ar 17.900 kr. Ljós­mynd/​Epal.is

Vör­ur sem eru fal­leg­ar og hag­nýt­ar

Þegar búið er að leggja grunn­inn að fönd­ur­horn­inu með borði og stól er hægt er hægt að leika sér með ým­isskon­ar skraut­muni til að gera fönd­ur­hornið heill­andi fyr­ir barnið. Það er alltaf góð hug­mynd að finna vör­ur sem eru í senn fal­leg­ar og hag­nýt­ar, en hér má til dæm­is sjá hillu sem nýt­ist vel und­ir fönd­ur­dót eða aðra smá­muni, skemmti­leg­an veggvasa sem hægt er að nota und­ir liti eða pensla og flotta minnistöflu sem hægt er að skreyta með mynd­um. 

Hér er einnig hægt að vinna með skemmti­leg­ar og lit­rík­ar körf­ur og kassa und­ir fönd­ur­dót sem hægt er að stafla und­ir eða við hliðina á borðinu eða setja upp í hillu í fönd­ur­horn­inu. 

Hilla frá Hay fæst hjá Epal og kostar 15.900 kr.
Hilla frá Hay fæst hjá Epal og kost­ar 15.900 kr. Ljós­mynd/​Epal.is
Skemmtilegur veggvasi frá Quail Ceramics fæst hjá Purkhús og kostar …
Skemmti­leg­ur veggvasi frá Quail Ceramics fæst hjá Purk­hús og kost­ar 7.990 kr. Ljós­mynd/​Purk­hus.is
Pennastandur frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 5.900 kr.
Penn­astand­ur frá Nof­red fæst hjá Epal og kost­ar 5.900 kr. Ljós­mynd/​Epal.is
Minnistafla frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 23.900 kr.
Minn­istafla frá Nof­red fæst hjá Epal og kost­ar 23.900 kr. Ljós­mynd/​Epal.is

Leyfðu sköp­un­ar­gleðinni að blómstra

Síðasta skrefið er að finna fönd­ur­vör­ur sem vekja áhuga barns­ins. Mögu­leik­arn­ir eru enda­laus­ir hér og mikið úr­val til að allskyns spenn­andi fönd­ur­vör­um. Það er klass­ískt að byrja á ein­föld­um vör­um á borð við vaxliti, máln­ingu, pensla, leir og perl­ur. Síðan er hægt að bæta hægt og ró­lega í fönd­ursafnið. 

Vaxlitir frá Konges Sløjd fást hjá Petit og kosta 2.690 …
Vaxlit­ir frá Konges Sløjd fást hjá Pe­tit og kosta 2.690 kr. Ljós­mynd/​Pe­tit.is
Akrýlmálning í allskyns litum fæst hjá Söstrene Grene.
Akrýl­máln­ing í allskyns lit­um fæst hjá Söstrene Grene. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
Sjálfharnandi leir fæst hjá Söstrene Grene og kostar 1.140 kr.
Sjálf­harn­andi leir fæst hjá Söstrene Grene og kost­ar 1.140 kr. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
Sólblóma leirform fæst hjá Eko húsinu og kostar 1.390 kr.
Sól­blóma leir­form fæst hjá Eko hús­inu og kost­ar 1.390 kr. Ljós­mynd/​Ekohusid.is
Stafrófsstimplar fást hjá Söstrene Grene og kosta 1.150 kr.
Staf­rófs­stimpl­ar fást hjá Söstrene Grene og kosta 1.150 kr. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
Perlur og perluspjöld fást hjá Söstrene Grene.
Perl­ur og perlu­spjöld fást hjá Söstrene Grene. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is
mbl.is