Skutu 300 drónum og flugskeytum

Ísrael/Palestína | 14. apríl 2024

Skutu 300 drónum og flugskeytum

Íranski herinn skaut fleiri en 300 árásardrónum og flugskeytum að Ísrael í fordæmalausum árásum í nótt. Að minnsta kosti 12 eru særðir, að sögn talsmanns Ísraelshers.

Skutu 300 drónum og flugskeytum

Ísrael/Palestína | 14. apríl 2024

Sprengingar lýsa upp himininn í Jerúsalem í árás Írans í …
Sprengingar lýsa upp himininn í Jerúsalem í árás Írans í nótt. Skjáskot/AFPTV

Íranski her­inn skaut fleiri en 300 árás­ar­drón­um og flug­skeyt­um að Ísra­el í for­dæma­laus­um árás­um í nótt. Að minnsta kosti 12 eru særðir, að sögn tals­manns Ísra­els­hers.

Íranski her­inn skaut fleiri en 300 árás­ar­drón­um og flug­skeyt­um að Ísra­el í for­dæma­laus­um árás­um í nótt. Að minnsta kosti 12 eru særðir, að sögn tals­manns Ísra­els­hers.

Ein af þeim sem særðist var sjö ára stúlka frá sam­fé­lagi Bedúína nærri bæn­um Arad.

Daniel Hag­ari, talsmaður hers­ins í Ísra­el, sagði í til­kynn­ingu að 170 drón­um og 30 stýrif­laug­um (e. cruise missi­les) hafi verið skotið að Ísra­el, en eng­in þeirra hafi kom­ist inn fyr­ir ísra­elska loft­helgi.

Einnig hafi verið skotið 110 flug­skeyt­um (e. ballistic missi­les) að Ísra­el en nokk­ur þeirra komust inn fyr­ir landið.

Öllum mark­miðum náð

Yf­ir­maður hjá ír­anska hern­um, Mohammad Bag­heri, seg­ir að öll­um þeim mark­miðum hafi verið náð sem ætlað hafi verið með árás­inni.

Árás­in hafi verið hefnd­araðgerð vegna árás­ar Ísra­els­hers að sendi­ráði Írans í Dam­askus­borg í Sýr­landi 1. apríl.

„Hernaðaraðgerðin heiðarlegt lof­orð […] var lokið með góðum ár­angri í gær­kvöldi og í morg­un og öll­um mark­miðum var náð,“ sagði Bag­heri rík­is­miðlin­um í Íran.

Hann sagði einnig að hefnd­arárás­in hafi beinst að „grein­ing­armiðstöð“ og herflug­velli sem Íran­ir telja að F-35-þotur ísra­elska hers­ins hafi flogið frá í árás­inni 1. apríl.

Bag­heri seg­ir bæði skot­mörk hafi verið eyðilögð. Ísra­els­hers seg­ir þó að litl­ar skemmd­ir hafi orðið sök­um hefnd­arárás­ar Írana.

Var­ar Banda­rík­in við af­skipt­um 

Bag­heri seg­ir að hernaðaraðgerðinni sé lokið að hálfu ír­anska hers­ins. Var­ar hann við því að ef Ísra­el ætli að svara árás­inni í sömu mynt, muni viðbrögð Írana verða „mun stærri“.

Hann var­ar Banda­rík­in einnig við því að aðstoða Ísra­el gegn Íran.

„Við send­um skila­boð til Banda­ríkj­anna í gegn­um sviss­neska sendi­ráðið, að ef þau vinna með Ísra­el í næstu mögu­legu aðgerðum þeirra, að þá verða stöðvar þeirra [Banda­ríkj­anna] ekki ör­ugg­ar,“ sagði Bag­heri.

mbl.is