Er eitthvað betra en volgt nýbakað brauð sem yljar manni alveg inn að hjartarótum? Hér er komin uppskrift að einu slíku, graskersbrauði sem er glútenlaust, inniheldur ekki hvítan sykur og er vegan. Heiðurinn af uppskriftinni á Anna Guðný Torfadóttir hjá Heilsu og vellíðan en hún er iðin að þróa nýja uppskriftir af ýmsu góðgæti sem er gott fyrir líkaman og sál.

„Ég var veik heima um daginn og leiddist óbærilega mikið. Ég kíkti hvað ég átti til í skápunum og fór að ígrunda hvað ég gæti gert sniðugt. Þá fæddist hugmyndin að þessari uppskrift og það besta var, að hún heppnaðist í fyrstu tilraun. Sem er smá eins og að vinna í lottóinu fyrir uppskriftaskapara. Allar uppskriftir koma svona til mín, sem hugmynd sem ég verð að prufa akkúrat núna. Þegar ég hoppa á þessar hugmyndir, þá fæðist ávallt eitthvað stórkostlegt. Þetta brauð er búið að gefa mér mikla hlýju, gleði og ást. Núna á mjög stuttum tíma er ég búin að baka brauðið þrisvar sinnum og það hefur slegið í gegn hjá þeim sem hafa verið svo heppnir að fá að smakka. Nú eru þið líka að detta í lukkupottinn því hér er uppskriftin góða og þá getið þið fundið fyrir þessum töfrum sem ég er að reyna að lýsa í orðum,“ segir Anna Guðný með bros á vör.
Það má leika sér endalaust með krydd í uppskriftinni sem heilla þig. Þetta er í rauninni kryddbrauð ef þú kryddar það þannig en getur líka verið milt kanilbrauð. Brauðið er að best að mati Önnu Guðnýjar með kókosolíu og grófu salti eða með hnetusmjöri og epli. Nú er bara að prófa og athuga hvort þá bræðir þitt matarhjarta.
Graskersbrauð
Aðferð: